Bróðir minn er í erfiðu sambandi - hvernig er hægt að hjálpa honum?

Theodor Francis Birgisson klínískur félagsfræðingur hjá Lausninni svarar spurningum lesenda …
Theodor Francis Birgisson klínískur félagsfræðingur hjá Lausninni svarar spurningum lesenda Smartland. Samsett mynd

Theodor Franc­is Birg­is­son klín­ísk­ur fé­lags­ráðgjafi og fjöl­skylduráðgjafi hjá Lausn­inni svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hann spurningu frá konu sem hefur áhyggjur af bróður sínum og hans ástarsambandi.

Sætt Theodor. 

Bróðir minn er í erfiðu sambandi með konu sem okkur í fjölskyldunni finnst koma illa fram við hann. Hann virðist ekki sjá ókosti hennar og einangrar sig frá okkur. Hvað getum við gert til að bæta samskiptin og styrkja hann í þessum aðstæðum?

Kveðja, 

Anna

Íslensk kona hefur áhyggjur af bróður sínum.
Íslensk kona hefur áhyggjur af bróður sínum. Yunus Tug/Unsplash

Sæl og blessuð Anna,

þetta er mjög góð spurning. Hér skiptir að sjálfsögðu mestu máli hvort að bróðir þinn sé sáttur í sambandinu eða hvort hann sættir sig bara við ástandið. Á þessu tvennu er reginmunur. Ef hann er sáttur þá endar þessi umræða þar.

Ef þið teljið að hann sé hins vegar ekki sáttur og sé bara að reyna að „lifa af“ í sambandinu þá er mjög mikilvægt að þið haldið góðu sambandi við hann. Það inniheldur að gefast ekki upp á að hringja í hann og bjóða honum í kaffi, draga hann með sér í sund, ræktina eða bíó, þó að það virðist stundum vera svolítið einstefnulegt. Hann þarf að vita að hann á örugga höfn hjá ykkur og að þið „skammið“ hann ekki fyrir að gera ekkert í málinu. Þetta er oft erfitt og því auðvelt að láta þetta pirra sig, en dropinn holar steininn. Ég vona að þetta hjálpi.

Kær kveðja,

Theodor

Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Theodor spurningu HÉR. 

mbl.is