Kaldvík öðlast ASC-vottun

Fiskeldisfyrirtækið Kaldvík á Austfjörðum hlaut á dögunum ASC-vottun fyrir laxeldi …
Fiskeldisfyrirtækið Kaldvík á Austfjörðum hlaut á dögunum ASC-vottun fyrir laxeldi sitt í sjókvíum.

Fisk­eld­is­fyr­ir­tækið Kald­vík á Aust­fjörðum hlaut fyrr í mánuðinum ASC-vott­un­ina fyr­ir lax­eldi sitt í sjókví­um.

ASC-vott­un­in (Aquacult­ureStewards­hip Council) er ein kröfu­h­arðasta gæða- og um­hverf­is­vott­un­in í mat­vælaiðnaðinum. Staðall­inn var þróaður af Alþjóðal­ega nátt­úru­vernd­ar­sjóðnum (World Wild­li­fe Fund) og vott­ar fram­lag fram­leiðenda um sjálf­bæra og ör­ugga starfs­hætti, dýra­vel­ferð og vernd­un nærliggj­andi vist­kerfa.  

Fram kem­ur í til­kynn­ingu Kald­vík­ur að vott­un­in snúi einnig meðal ann­ars að þeim skrefum sem fisk­eld­is­fyr­ir­tæki taki til þess að lág­marka áhrif á nær­liggj­andi vist­kerfi með sér­stakri áherslu á fram­lag til þess að draga úr hættu á slysaslepp­ingum úr kví­um, sjúk­dóms­hættu og meng­un við kví­arn­ar.  

„Þessi vott­un er mikið heilla­spor í veg­ferð Kald­vík­ur. Við vor­um þegar með vott­un frá Whole Foods Mar­ket í Banda­ríkj­un­um sem er einnig mjög kröfu­hörð. Að ASC-vott­un­in skuli bæt­ast við er okk­ur mikið gleðiefni. Við hjá Kald­vík göng­um alltaf út frá því að vinna út frá hæstu ör­ygg­is- og gæðastöðlum og ánægju­legt er að fá þessa vott­un til marks um það,“ seg­ir Roy-ToreRik­ardsen, for­stjóri Kald­vík­ur í til­kynn­ing­unni. 

mbl.is