Aðstæður á Íslandi þykja mjög heppilegar

Hönnun landeldisstöðvar fyrir Laxey í Vestmanneyjum er eitt stærstu verkefnum …
Hönnun landeldisstöðvar fyrir Laxey í Vestmanneyjum er eitt stærstu verkefnum EFLU um þessar mundir. Ljósmynd/EFLA

Hönn­un­ar­verk­efni fyr­ir fisk­eld­is­geir­ann verða sí­fellt fyr­ir­ferðarmeiri í starf­semi EFLU. Hvert verk­efni eru stór að um­fangi og kem­ur sér vel að verk­fræðing­ar fé­lags­ins hafa þekk­ingu á breiðu sviði enda geta fisk­eld­is­stöðvar verið mjög flókn­ar og gerðar rík­ar kröf­ur um af­köst og ör­yggi.

Smári Guðfinns­son fyr­irliði Vélat­eym­is EFLU og hönn­un­ar­stjóri land­eld­is­stöðvar Lax­eyj­ar í Vest­manna­eyj­um, seg­ir von­ir standi til að EFLA taki virk­an þátt í þeirri miklu upp­bygg­ingu sem fram und­an er í ís­lensk­um fisk­eld­isiðnaði.

Hjá EFLU starfa um 560 manns og auk höfuðstöðvanna á Íslandi hef­ur fé­lagið starf­semi í sex Evr­ópu­lönd­um til viðbót­ar.

„Við erum með öfl­ugt viðskiptaþró­un­ar­svið sem er alltaf vak­andi yfir því hvar tæki­fær­in kunna að leyn­ast á kom­andi árum. Kom­um við því snemma auga á þá upp­bygg­ingu sem núna er að fara hraust­lega í gang og gát­um því verið vel und­ir­bú­in nú þegar þessi gluggi er að opn­ast,“ út­skýr­ir Smári.

Með stærstu verk­efn­um EFLU um þess­ar mund­ir er hönn­un land­eld­is­stöðvar fyr­ir Lax­ey í Vest­manna­eyj­um ásamt hönn­un á slát­ur­húsi og seiðaeld­is­stöð First Water í Þor­láks­höfn. Þá hef­ur EFLA ný­lokið hönn­un á slát­ur­húsi fyr­ir Arctic Fish í Bol­ung­ar­vík, sem er komið í full­an rekst­ur.

Um margra ára verk­efni er að ræða og seg­ir Smári að EFLA sjái ekki ein­ung­is um hönn­un­ar­vinn­una held­ur ann­ist líka alla leyf­isþætti og um­hverf­is­mál.

Allt þarf að virka rétt

Stærsta áskor­un­in felst í að hanna þau kerfi sem sjá um dæl­ingu og meðhöndl­un vatns. Er það al­gjört lyk­il­atriði í fisk­eld­inu hvernig súr­efni er fram­leitt og hvernig því er dreift í ker­in.

Smári seg­ir að þar hafi nýst vel sú reynsla sem starfs­fólk EFLU hef­ur t.d. af gas­verk­efn­um fyr­ir ál­ver­in. Meðhöndl­un úr­gangs þarf líka að vera í sam­ræmi við ströngustu staðla og þar nefn­ir Smári að EFLA hafi m.a. nýtt þekk­ingu úr fyrri verk­efn­um fyr­ir gas- og jarðgerðar­stöð og hreins­istöðvar frá­veitu­kerfa.

„Í land­eld­is­stöð þurfa mjög marg­ir þætt­ir að vinna sam­an en á sama tíma verður að vera hægt að tryggja góðan aðskilnað á milli tanka svo að smit geti t.d. ekki borist á milli þeirra,“ út­skýr­ir Smári og tek­ur und­ir að í reynd séu fyr­ir­mynd­ir af skorn­um skammti því að þau land­eld­is­verk­efni sem nú er unnið að á Íslandi séu af stærðargráðu sem ekki hef­ur áður sést. „Við höf­um skoðað sam­bæri­leg verk­efni í öðrum lönd­um og er hver stöð með sín­ar lausn­ir og hönnuð í sam­ræmi við aðstæður á hverj­um stað.“

Nán­ar um málið í sér­blaði 200 mílna, Lag­ar­líf 2024, sem fylgdi Morg­un­blaðinu á laug­ar­dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: