Eldislaxinn gæti tekið fram úr þorskinum

Bjørn Hembre forstjóri Arnarlax segir stutt í það að sjókvíaeldi …
Bjørn Hembre forstjóri Arnarlax segir stutt í það að sjókvíaeldi rjúfi 70 þúsund tonna múrinn. Ljósmynd/Aðsend

Mikið vatn hef­ur runnið til sjáv­ar síðan rekst­ur Arn­ar­lax byrjaði að taka á sig mynd árið 2009. Fé­lagið var form­lega stofnað á Bíldu­dal árið 2010 og árið 2013 hófst seiðafram­leiðsla í gam­alli bleikju­stöð á Tálknafirði sem fyr­ir­tækið lét end­ur­nýja.

Fyrsti fisk­ur­inn var sett­ur í sjókví­ar árið 2014 og Arn­ar­lax gaf út sinn fyrsta sölu­reikn­ing árið 2016, eða fyr­ir átta árum.

„Í dag eru starfs­menn­irn­ir orðnir um 170 tals­ins og þar af eru um 70% sem lifa og starfa á Vest­fjörðum,“ seg­ir Bjørn Hembre for­stjóri en starf­sem­in skipt­ist á milli Tálkna­fjarðar, Bíldu­dals, Pat­reks­fjarðar, Þor­láks­hafn­ar, Hall­kels­hóla og Kópa­vogs.

Fyr­ir­tækið fram­leiddi um 18.000 tonn af laxi árið 2023 og er út­lit fyr­ir að fé­lagið fram­leiði um 13.000 tonn á þessu ári en stefnt er að því að ná 25.000 tonna mark­inu í ná­inni framtíð."

Stytt­ist í 70.000 tonn

Heild­ar­fram­leiðsla ís­lenskra fisk­eld­is­fyr­ir­tækja var tæp 50.000 tonn á síðasta ári en þar af var laxa­fram­leiðsla um 43.500 tonn. Bjørn seg­ir að bú­ast megi við mik­illi aukn­ingu í fram­leiðslu á kom­andi árum og þess sé skammt að bíða að fram­leiðsla lax­eld­is í sjó rjúfi 70.000 tonna múr­inn.

Þá eigi eft­ir bæta við þeim risa­stóru verk­efn­um sem fyr­ir­huguð eru í land­eldi og ljóst að verðmæta­sköp­un grein­ar­inn­ar allr­ar verði gríðarleg.

„Við sjá­um að lax­inn er orðinn næst­verðmæt­asta fisk­veiðiteg­und­in á eft­ir þorsk­in­um en lax­inn er far­inn upp fyr­ir út­flutn­ings­verðmæti loðnunn­ar. Ég hugsa að út­flutn­ings­verðmæti eld­islax geti jafn­vel farið fram úr þorsk­in­um á næstu fjór­um eða fimm árum,“ seg­ir hann.

Nán­ar um málið í sér­blaði 200 mílna, Lag­ar­líf 2024, sem fylgdi Morg­un­blaðinu á laug­ar­dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: