Vettvangur til að hvetja konur til dáða

Eva Dögg Jóhannesdóttir segir konur í þessu nýja félagi hafi …
Eva Dögg Jóhannesdóttir segir konur í þessu nýja félagi hafi þau markmið að styðja og laða að fleiri konur að fiskeldi. mbl.is/Árni Sæberg

Mik­ill kraft­ur er í starfi ým­issa fé­laga sem helguð eru kon­um á frama­braut. Skemmst er að minn­ast Fé­lags kvenna í at­vinnu­rekstri (FKA) sem stofnað var vorið 1999 og er í dag orðið að fjöl­menn­um sam­tök­um með starf­semi um allt land.

Fé­lagið Kon­ur í sjáv­ar­út­vegi (KIS) hef­ur einnig blómstrað frá því það var stofnað árið 2013 og leikið stórt hlut­verk við að efla þær kon­ur inn­an grein­ar­inn­ar. 

Nú hef­ur verið ákveðið að stofna fé­lag á Lag­ar­líf ráðstefn­unni sem hefst í dag í Hörpu, sem helgað verður kon­um sem starfa við hvers kon­ar eldi, hvort sem er í sjó eða á landi, inn­an eld­is­fyr­ir­tækja eða í tengd­um störf­um – Kon­ur í eldi á  

„Eld­is­geir­inn er ört vax­andi at­vinnu­grein hér á landi og gíf­ur­leg fram­för hef­ur átt sér stað í grein­inni sem er þó enn í mik­illi þróun og vexti hér á landi sem og á heimsvísu,“ seg­ir Eva Dögg Jó­hann­es­dótt­ir sem leitt hef­ur stofn­un nýja fé­lags­ins.

Hún seg­ir fé­lagið Kon­ur í eldi vera óðara að taka á sig mynd

„Við erum þegar komn­ar með nokkuð öfl­ug­an hóp kvenna á Face­book til skrafs og ráðagerða og þar hafa spunn­ist mikl­ar umræður um stofn­un nýs fé­lags, og ætla marg­ar kon­ur að mæta á Lag­ar­lífs­ráðstefn­una í tengsl­um við stofn­un fé­lags­ins,“ út­skýr­ir Eva, sem er sjáv­ar­líf­fræðing­ur að mennt

Skálað fyr­ir stofn­un nýs fé­lags

Eva hef­ur starfað í fisk­eld­is­geir­an­um um nokkuð langt skeið og er í dag hjá fyr­ir­tæk­inu Blá­um Akri sem sér­hæf­ir sig í þjón­ustu á sviði heil­brigðis- og vel­ferðar eld­is­fiska og um­hverf­is.

„Á Lag­ar­lífs­ráðstefn­unni mun­um við láta bera sér­stak­lega vel á okk­ur, Kon­um í eldi, þar sem á fyrri deg­in­um verður boðið í kokteil að fyr­ir­lestr­um lokn­um og skálað fyr­ir stofn­un nýs fé­lags. Við von­umst til að sjá sem flest­ar kon­ur sem starfa í og við eld­is­geir­ann koma og fagna með okk­ur,“ seg­ir Eva. 

Snýst um vel­ferð og vöxt

Töl­ur um kynja­skipt­ingu starfa í eld­is­geir­an­um liggja ekki á lausu en Eva seg­ir að kon­ur hafi þó greini­lega gert sig gild­andi í alls kyns hlut­verk­um hjá bæði eld­is­fyr­ir­tækj­um í sjó og á landi sem og í þjón­ustu við eldi, eft­ir­lit og rann­sókn­ir.

„Það erum við sem þurf­um að gera okk­ar hlut til að verða sýni­legri, og fræða um hlut­verk okk­ar í þess­ari fjöl­breyttu og spenn­andi at­vinnu­grein“ seg­ir Eva.

Hún bæt­ir við að það sé margt æski­legt við að kon­ur skapi sér sam­eig­in­leg­an fag­leg­an vett­vang.

„Kon­ur í þessu nýja fé­lagi munu hafa það að mark­miði að styðja aðrar kon­ur sem starfa í og við eldi en einnig að laða kon­ur að grein­inni, kynna hin fjöl­breyttu störf sem þar bjóðast og tæki­fær­in sem eru í boði.“

Nán­ar um málið í sér­blaði 200 mílna, Lag­ar­líf 2024, sem fylgdi Morg­un­blaðinu á laug­ar­dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: