Icelandair og TAP í samstarf

Þessi ljósmynd var tekin í Lissabon í dag þegar samningurinn …
Þessi ljósmynd var tekin í Lissabon í dag þegar samningurinn á milli Icelandair og TAP var undirritaður.

Íslenska flugfélagið Icelandair og portúgalska flugfélagið TAP undirrituðu samstarfssamning um sammerkt flug á skrifstofu þess síðarnefnda á Lissabon flugvelli fyrr í dag. Flugfélögin hafa unnið saman um árabil en með sammerktu flugi er samstarfið aukið enn frekar. Þannig munu viðskiptavinir geta nýtt þægilegar tengingar á milli leiðakerfa flugfélaganna og úrval tengimöguleika eykst.

„Það er mjög spennandi að bæta TAP við öflugan hóp samstarfsflugfélaga okkar. Við hófum nýverið flug til Lissabon og með því að bjóða einnig upp á sammerkt flug með TAP getum við stóraukið úrval áfangastaða í tengiflugi. Þannig munu farþegar sem hefja flugið á Íslandi geta haft viðdvöl í Lissabon á leið sinni til spennandi áfangastaða í leiðakerfi TAP. Viðskiptavinir TAP geta sömuleiðis nýtt sér að fljúga frá fjölda áfangastaða TAP, í gegnum Lissabon til Íslands og jafnvel áfram til fjölda áfangastaða í okkar öfluga leiðakerfi,“ segir Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair. 

John Lysebjerg Rasmusen, sölustjóri suður- Evrópu hjá Icelandair, Henri-Charles Ozarovsky, …
John Lysebjerg Rasmusen, sölustjóri suður- Evrópu hjá Icelandair, Henri-Charles Ozarovsky, yfirmaður alþjóðamála hjá TAP, Mário Chaves, framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs TAP, Luís Rodrigues, forstjóri TAP, Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair Helgi Már Björgvinsson, yfirmaður alþjóðamála hjá Icelandair og Mahesbin Samssudin yfirmaður samstarfs hjá TAP.

Þægilegar tengingar

„Samstarfið við Icelandair mun auka úrval ferðamöguleika og áfangastaða sem viðskiptavinir okkar geta valið úr. Þannig munu opnast þægilegar tengingar til Íslands, sem er einn af mest spennandi áfangastöðunum í dag, og fjölmargar tengingar fyrir viðskiptavini Icelandair um öflugt leiðakerfi okkar frá Lissabon. Við hlökkum til að starfa með Icelandair að því að auðvelda fólki að ferðast um heiminn,“ segir Luís Rodrigues, forstjóri TAP. 

TAP flýgur til um 90 áfangastaða víða um heim, meðal annars í Evrópu, Afríku og Suður-Ameríku. Á meðal áhugaverðra staða í leiðakerfið TAP eru Rio de Janeiro, São Paulo, Porto og Grænhöfðaeyjar. Leiðakerfi Icelandair spannar um 60 áfangastaði í Evrópu og Norður-Ameríku. Bæði flugfélög er þekkt fyrir að bjóða upp á svokallað Stopover sem gerir farþegum kleift að hafa viðdvöl í heimalöndum félaganna þegar ferðast er á milli áfangastaða.

mbl.is