Fyrsta flug Play til Marrakesh kallaði á trommuslátt

Mikil gleði ríkti þegar flugvél Play lenti í afrísku borginni …
Mikil gleði ríkti þegar flugvél Play lenti í afrísku borginni Marrakesh í gær. Samsett mynd

Flugfélagið Play flaug sína fyrstu ferð til Afríku í gær. Ferðinni var heitið til Marrakesh og fengu gestir vélarinnar góðar móttökur við lendingu í afrísku borginni. Tekið var á móti fólki með tommuslætti og tónlist.

Viðburður var haldinn á Keflavíkurflugvelli fyrir brottför þar sem Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play, og Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, ávörpuðu gesti í tilefni dagsins.

Flogið er tvisvar í viku til Marrakesh, á fimmtudögum og sunnudögum, og er flugið um fimm klukkustundir.

Töfrandi borg

Marrakesh er töfrandi borg þar sem gamli tíminn og nútíminn mætast. Þar geta ferðalangar auðveldlega gleymt sér á lifandi mörkuðum, eða innan um stórfenglega byggingarlist. Marrakesh er ein fjögurra keisaraborga Marokkó og höfuðborg Marrakesh-Safi svæðisins.

Þessi stórbrotna borg er staðsett við rætur hinna frægu Atlasfjalla. Borgin er oft kölluð rauða borgin vegna rauðs sandsteins sem áður fyrr var notaður sem byggingarefni og setur enn svip sinn á Marrakesh. Með tímanum hefur borgin vaxið og orðið að sannkallaðri menningar-, trúar- og viðskiptamiðstöð Marokkó.

Boðið var upp á veitingar á Keflavíkurflugvelli fyrir brottför.
Boðið var upp á veitingar á Keflavíkurflugvelli fyrir brottför. Ljósmynd/Aðsend
Mikil gleði ríkti á flugvellinum í Marrakesh.
Mikil gleði ríkti á flugvellinum í Marrakesh. Ljósmynd/Aðsend
Gleðin var í hávegum höfð.
Gleðin var í hávegum höfð. Samsett mynd
Gómsætar veitingar voru á boðstólnum.
Gómsætar veitingar voru á boðstólnum. Ljósmynd/Aðsend
Marrakesh er nýjasti áfangastaður Play.
Marrakesh er nýjasti áfangastaður Play. Ljósmynd/Aðsend
Starfsmenn Play voru glaðir í bragði.
Starfsmenn Play voru glaðir í bragði. Ljósmynd/Aðsend
Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, og Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play, …
Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, og Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play, klipptu á borðann.
Sveinbjörn Indriðason.
Sveinbjörn Indriðason. Ljósmynd/Aðsend
Líf og fjör var á Keflavíkurflugvelli.
Líf og fjör var á Keflavíkurflugvelli. Ljósmynd/Aðsend
Mikil spenna var í loftinu.
Mikil spenna var í loftinu. Ljósmynd/Aðsend
DJ Dóra Júlía lét sig ekki vanta.
DJ Dóra Júlía lét sig ekki vanta. Ljósmynd/Aðsend
Marókkoski fáninn hékk víða.
Marókkoski fáninn hékk víða. Ljósmynd/
Glaður farþegi.
Glaður farþegi. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is