Laxeldi á Grundartanga skal sæta umhverfismati

Yfirlitsmynd úr skýrslu Aurora fiskeldis ehf. og Eflu um fyrirhugað …
Yfirlitsmynd úr skýrslu Aurora fiskeldis ehf. og Eflu um fyrirhugað landeldi sem sýnir framkvæmdarsvæðið norðaustan við álver Norðuráls. Ljósmynd/Greinargerð Eflu og Aurora fiskeldi ehf.

Fyr­ir­hugað land­eldi Aur­ora fisk­eld­is ehf. á laxi á Grund­ar­tanga í Hval­f­irði er lík­legt til að hafa í för með sér um­tals­verð um­hverf­isáhrif að mati Skipu­lags­stofn­un­ar og þarf að fara í um­hverf­is­mat.

Áætlan­ir fyr­ir­tæk­is­ins gera ráð fyr­ir að land­eld­is­stöðin verði á lóð nr. 34 á Grund­ar­tanga norðaust­an við ál­ver Norðuráls við Kata­ne­stjörn og er stefnt að bæði seiðaeldi og mat­fisk­eldi í stöðinni.

Fyr­ir­huguð fram­leiðsla er um 14 þúsund tonn á ári og verða alls notuð 44 ker.

Upp­bygg­ing er tal­in munu taka þrjú til fjög­ur ár.

Nán­ari um­fjöll­un er að finna í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: