Laxey fjárfestir í búnaði frá Baader

Kristmann Kristmannsson, verkefnisstjóri vinnslu og innkaupa hjá Laxey, og Daði …
Kristmann Kristmannsson, verkefnisstjóri vinnslu og innkaupa hjá Laxey, og Daði Pálsson, framkvæmdarstjóri Laxeyjar, innsigla samninginn með Karli Ásgeirssyni, sölustjóra Baader á Íslandi. Ljósmynd/Laxey

Land­eld­is­fyr­ir­tækið Lax­ey í Vest­manna­eyj­um og Baader á Íslandi hafa gert með sér samn­ing um af­hend­ingu á vinnslu­búnaði fyr­ir vænt­an­legt slát­ur­hús Lax­eyj­ar.

Þetta kem­ur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Lax­ey en þar seg­ir m.a.: „Samn­ing­ur­inn mark­ar tíma­mót fyr­ir bæði fé­lög, sem sjá fram á að styrkja stöðu sína á ört vax­andi markaði land­eld­is á Íslandi. Fyr­ir LAX­EY er sam­starfið mik­il­vægt í að tryggja búnað og fram­leiðslu­tækni, sem mun styðja við áætlan­ir þess um hágæða afurðir fyr­ir alþjóðleg­an markað.“

Baader er alþjóðlegt fyr­ir­tæki í þróun og fram­leiðslu á tækja­búnaði fyr­ir vinnslu sjáv­ar­af­urða. Í til­kynn­ing­unni seg­ir að fé­lagið bjóði þekkt­ar lausn­ir sem hannaðar eru með gæði ig dýra­vel­ferð í huga. „Þessi nálg­un ger­ir Baader að góðum sam­starfsaðila fyr­ir Lax­ey, sem legg­ur áherslu á ábyrgðarfulla mat­væla­fram­leiðslu og upp­fyll­ir um leið kröf­ur viðskipta­vina um all­an heim.“

Mik­il upp­bygg­ing er í gangi í Vest­mana­n­eyj­um og lauk Lax­ey 900 millj­óna króna hluta­fjárútoði síðastliðið sum­ar.

Spennt yfir sam­starf­inu

„Við erum spennt fyr­ir þessu sam­starfi við Baader, sem er í far­ar­broddi þegar kem­ur að tækni­lausn­um fyr­ir sjáv­ar­út­veg. Þessi samn­ing­ur get­ur lagt grunn­inn að ár­ang­urs­ríku sam­starfi og við vænt­um þess að þetta verði upp­hafið að far­sælu sam­bandi sem mun stuðla að því að efla ís­lensk­an land­eld­isiðnað,“ er haft eft­ir Krist­manni Krist­manns­syni, verk­efn­is­stjóra vinnslu og inn­kaupa.

„Við erum stolt af því að taka þátt í þessu mik­il­væga verk­efni með LAX­EY. Okk­ar búnaður mun tryggja að þeir geti staðið und­ir þeim ströngu kröf­um sem gerðar eru til gæða í fram­leiðslu á alþjóðleg­um markaði,“ seg­ir Karl Ásgeirs­son, sölu­stjóri Baader á Íslandi.

mbl.is