Kaldvík hefur samstarf við Aquabyte

Kaldvík er stærsti frmaleiðandi eldislax á Íslandi.
Kaldvík er stærsti frmaleiðandi eldislax á Íslandi. Ljósmynd/Kaldvík

Kald­vík, stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki á Íslandi, og norska tæknifyr­ir­tækið Aqua­byte hafa hafið sam­starf, en norska fyr­ir­tækið sér­hæf­ir sig í gagna­drifn­um eft­ir­lit­s­kerf­um fyr­ir fisk­eldi.

Fram kem­ur í frétta­til­kynn­ingu að Kald­vík mun inn­leiða Aqua­byte-kerfi á sín­um eld­is­svæðum og í sam­starfi munu fyr­ir­tæk­in þróa lausn­ir sem merk­mið er um að verði sniðnar að þörf­um ís­lensks lax­eld­is.

„Við völd­um Aqua­byte eft­ir ít­ar­leg­an sam­an­b­urð á kerf­um á markaðnum. Ákvörðun okk­ar byggðist á getu Aqua­byte til að skara fram úr á fjór­um lyk­ilsviðum: vel­ferðareft­ir­liti, líf­massamæl­ingu, eft­ir­fylgni við af­hend­ing­ar og ná­kvæmni við taln­ingu á lús,“ seg­ir Kjart­an Lind­bøl, fram­kvæmda­stjóri sjó­eld­is hjá Kald­vík, í til­kynnign­unni.

„Fyr­ir okk­ur var mik­il­vægt að skapa sterkt sam­band á milli allr­ar okk­ar starf­semi og birgj­ans sem við mynd­um vinna með. Á þessu sviði stóð Aqua­byte sig bet­ur en önn­ur fyr­ir­tæki sem voru bor­in sam­an,“ seg­ir Kjart­an.

Kjartan Lindbøl, framkvæmdastjóri sjóeldis hjá KAldvík.
Kjart­an Lind­bøl, fram­kvæmda­stjóri sjó­eld­is hjá KAld­vík. Ljós­mynd/​iLaks:Tina Tot­land Jens­sen

Með áætlaða fram­leiðslu upp á 17.500 tonn árið 2024 er Kald­vík (áður Ice Fish Farm) stærsti fram­leiðandi eld­islax á Íslandi. Kald­vík rek­ur átta eld­is­svæði sem eru staðsett á aust­ur­landi auk tveggja seiðastöðva á landi. Fyr­ir­tækið er skráð á Euronext Growth Oslo og Nas­daq First North Growth Mar­ket á Íslandi.

„Við erum spennt að hefja þetta sam­starf við Kald­vík. Þetta er fram­sækið fyr­ir­tæki sem skil­ur mik­il­vægi gagna og þann virðis­auka sem gagna­drif­in nálg­un veit­ir í fisk­eldi,“ seg­ir Kamilla Svind­seth, sölu­stjóri hjá Aqua­byte, en  Kald­vík er þegar farið að inn­leiða Aqua­byte-kerfi á sín­um eld­is­svæðum og er lagt upp með að hafa kerfi í hverri kví.

„Með því að deila gögn­um og þekk­ingu verða fyr­ir­tæk­in tvö í ein­stakri stöðu til að þróa gagna­drif­in eft­ir­lits- og ákv­arðana­kerfi enn frek­ar, sem tak­ast á við ein­stak­ar líf­fræðileg­ar og land­fræðileg­ar áskor­an­ir við eldi á Íslandi,“ út­skýr­ir Svind­seth.

Kamilla Svindseth sölustjóri Aquabyte.
Kamilla Svind­seth sölu­stjóri Aqua­byte. Ljós­mynd/​Aqua­byte
mbl.is