Musk má gefa kjósendum milljón dollara

Elon Musk heldur ræðu á kosningafundi Trumps.
Elon Musk heldur ræðu á kosningafundi Trumps. AFP/Angela Weiss

Dóm­ari í Penn­sylvan­íu-ríki hef­ur hafnað því að koma skuli í veg fyr­ir að auðjöf­ur­inn Elon Musk geti gefið eina millj­ón doll­ara, eða um 142 millj­ón­ir króna, til skráðra kjós­enda í sveiflu­ríkj­um í banda­rísku for­seta­kosn­ing­um.

Larry Krasner á leiðinni í dómsalinn.
Larry Kra­sner á leiðinni í dómsal­inn. AFPY/​Drew Hallowell

Yf­ir­sak­sókn­ari Fíla­delfíu-borg­ar, Larry Kra­sner, höfðaði málið í síðustu viku og sagði Musk hafa búið til „ólög­legt lottós­vindl“. Í kjöl­farið kvað dóm­ari upp þann úr­sk­urð að Musk skyldi mæta í dómsal­inn. Þrátt fyr­ir það lét Musk ekki sjá sig. 

mbl.is