Nýtt útflutningsmet fyrir íslenskt fiskeldi

Útflutningsverðmæti fiskeldis á fyrstu níu mánuðum ársins var meira en …
Útflutningsverðmæti fiskeldis á fyrstu níu mánuðum ársins var meira en 35 milljarðar króna. Ljósmynd/Arctic Fish: Haukur Sigurðsson

Útflutn­ings­verðmæti eldisaf­urða var um fjórðungi meira í sept­em­ber síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra og nam 4,6 millj­örðum króna. Útflutn­ings­verðmæti eldisaf­urða á fyrstu níu mánuðum er þá komið í 35,3 millj­arða króna og hef­ur aldrei verið meiri.

„Það ætti nú að vera öll­um ljóst að fisk­eldi er nú þegar orðinn veiga­mik­ill liður í út­flutn­ingi Íslend­inga og mun án nokk­urs vafa verða enn fyr­ir­ferðarmeira þegar fram líða stund­ir. Sú þróun er afar já­kvæð, enda eyk­ur fisk­eldi fjöl­breytni í út­flutn­ingi og styrk­ir gjald­eyrisöfl­un þjóðarbús­ins með til­heyr­andi já­kvæðum áhrif­um á at­vinnu­líf og sam­fé­lög víða um land. Það má held­ur ekki gleyma þeirri staðreynd að var­an­leg­ur vöxt­ur út­flutn­ingstekna er grund­vallar­for­senda sjálf­bærs hag­vaxt­ar og bættra lífs­kjara hér á landi,“ seg­ir í grein­ingu Radars­ins.

Þar er fjallað um nýj­ustu töl­ur Hag­stofu Íslands um vöru­skipti og er vak­in at­hygli á því að um sé að ræða 23% aukn­ingu út­flutn­ings­verðmæt milli ára miðað við fast gengi. Þá var út­flutn­ings­verðmæti eldisaf­urða tæp 14% af út­flutn­ings­verðmæt­um sjáv­ar­af­urða á fyrstu níu mánuðum árs­ins 2024 og  5% af öll­um vöru­út­flutn­ingi, en þessi hlut­föll hafa aldrei verið meiri.

Mynd/​Radar­inn

Þró­un­ina má fyrst og fremst rekja til lax­ins að því er fram kem­ur í grein­ing­unni.

„Þannig er út­flutn­ings­verðmæti eld­islax komið í rúma 29 millj­arða króna á fyrstu níu mánuðum árs­ins og hef­ur aldrei verið meira. Miðað við sama tíma­bil í fyrra er um 35% aukn­ingu að ræða á föstu gengi. Einnig er veru­leg aukn­ing á út­flutn­ings­verðmæti Senegal flúru, sem er einn verðmæt­asti mat­fisk­ur í heimi. Þannig er út­flutn­ings­verðmæti henn­ar komið í rúma 1,3 millj­arða króna á til­greindu tíma­bili, sem er um 78% aukn­ing á milli ára á sama kvarða.“

Bleikja fyr­ir áhrif­um elds­um­brota

Sam­drátt­ur er hins veg­ar í út­flutn­ings­verðmæt­um sil­ungs sem er að megn­inu til bleikja. Námu út­flutn­ings­verðmæti sil­ungs á fyrstu níu mánuðum árs­ins 3,3 milljöðrum króna sem er 21% minna en á sama tíma­bili 2023.

„Þar hafa jarðhrær­ing­ar og elds­um­brot í Grinda­vík sett strik í reikn­ing­inn. Þá er einnig tölu­verður sam­drátt­ur í út­flutn­ings­verðmæti frjóvgaðra laxa­hrogna, sem eru verðmæt há­tækni­fram­leiðsla. Útflutn­ings­verðmæti þeirra nem­ur rúm­um 1,4 millj­arði króna á fyrstu níu mánuðum árs­ins, sem er um 31% sam­drátt­ur frá sama tíma­bili í fyrra,“ seg­ir í grein­ing­unni.

Mynd/​Radar­inn
mbl.is