„Þetta er óásættanleg staða“

Víkingur Gunnarsson segir fyrirtæki á Vestfjörðum búa við skert afhendingaröryggi …
Víkingur Gunnarsson segir fyrirtæki á Vestfjörðum búa við skert afhendingaröryggi afurða vegna stöðu samgangna. mbl.is/Helgi Bjarnason

„Vest­firsk fyr­ir­tæki búa við skert af­hend­ingarör­yggi afurða varðandi út­flutn­ing og stand­ast ekki sam­an­b­urð við aðra lands­hluta. Sama gild­ir um aðföng fyr­ir starf­sem­ina. Þetta er óá­sætt­an­leg staða,“ seg­ir Vík­ing­ur Gunn­ars­son í aðsendri grein í Morg­un­blaðinu í dag.

Bend­ir hann á að at­vinnu­lífið á Vest­fjörðum hafi tekið mikl­um breyt­ing­um á und­an­förn­um árum og vís­ar til hins mikla vöxt í fisk­eldi.

Vík­ing­ur, sem er starfsmaður Arn­ar­lax og var um nokk­urt skeið fram­kvæmda­stjóri fé­lags­ins, seg­ir vöxt­inn í fisk­eld­inu hafa reynt á sam­göngu­innviði.

„Um­ferð hef­ur auk­ist gríðarlega á þeim fjall­veg­um sem eru á milli byggðarlaga. Þannig eru til að mynda fjall­veg­irn­ir á milli Bíldu­dals, Tálkna­fjarðar og Pat­reks­fjarðar þeir fjöl­förn­ustu á Vest­fjörðum. Eitt hef­ur þó ekki tekið breyt­ing­um. Far­ar­tálm­arn­ir eru enn þeir sömu og fólk ótt­ast þessa fyr­ir­stöðu.“

„Eina leiðin til að gera Vest­f­irði sam­keppn­is­hæfa við aðra lands­hluta er að hefja sam­stillt átak í upp­bygg­ingu innviða sem setið hafa á hak­an­um. Það er ákall um upp­bygg­ingu jarðganga og annarra sam­göngu­mann­virkja sem sér­stakt og af­markað viðfangs­efni. – „Vest­fjarðalín­an“ er svarið,“ full­yrðir hann.

Grein Vík­ings má lesa í heil sinni í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: