Eldisgreinar þurfi stöðugleika

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segist hafa bundið vonir við að koma …
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segist hafa bundið vonir við að koma lagareldisfrumvarpinu á þingmálaskrá í haust en það hafi ekki gengið. Telur hann mikilvægt að slíkt frumvarp hljóti afgreiðslu sem fyrst að loknum kosningum. mbl.is/Eyþór

„Á meðan að starfs­stjórn sit­ur er ekki verið að vinna stefnu­mót­andi vinnu og þessi frum­vörp verða ekki lögð fram af starfs­stjórn,“ Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráðherra innt­ur álits á stöðu tveggja stórra stefnu­mark­andi frum­varpa frá­far­andi rík­is­stjórn­ar um ann­ars veg­ar heild­ar­end­ur­skoðun laga um fisk­veiðistjórn­un­ina og hins veg­ar svo­kallað lagar­eld­is­frum­varp.

„Ég var að vona að frum­varp um lagar­eldi kæmi inn á þing­mála­skrá í haust og reyndi að liðka fyr­ir því en svo varð því miður ekki,“ svar­ar Bjarni, sem einnig fer með hlut­verk mat­vælaráðherra sem og fé­lags- og vinnu­markaðsráðherra.

„Lagar­eldið hef­ur gríðarlega mögu­leika á að auka verðmæta­sköp­un en afar mik­il­vægt er að stöðug­leiki og fyr­ir­sjá­an­leiki verði til í grein­inni svo að fyr­ir­tæk­in geti farið í fjár­fest­ing­ar og geri ráðstaf­an­ir í starf­semi sinni. Það er því gríðarlega mik­il­vægt að slíkt frum­varp verði klárað sem fyrst að lokn­um kosn­ing­um,“ út­skýr­ir hann.

Ekki mælt fyr­ir frum­vörp­um

Bjarni seg­ir flókn­ari sögu að baki hug­mynda um breyt­ing­ar á fisk­veiðilög­gjöf­inni og þeirra frum­varpa sem lögð voru fram í haust án þess að þau feng­ust af­greidd.

„Í tíð Svandís­ar Svavars­dótt­ur í mat­vælaráðuneyti var unn­in stefnu­mót­un sem fékk tals­verða gagn­rýni og fór ekki fyr­ir þingið. Í haust voru svo lögð fram frum­vörp sem ekki var mælt fyr­ir. Ég tel mik­il­vægt að frum­vörp­in verði skoðuð út frá þeim sjón­ar­miðum fyrst og fremst að við gæt­um að sjálf­bærni auðlind­anna og stöðugum og sann­gjörn­um reglur­amma fyr­ir fyr­ir­tæk­in sem stunda veiðar.“

Hann ít­rek­ar að lok­um hlut­verk starfs­stjórn­ar að „tryggja stjórn­skipu­lega festu og að halda nauðsyn­leg­um verk­efn­um gang­andi og ekki vinna að stefnu­mót­andi mál­um.“

mbl.is