434 milljóna taprekstur hjá Arnarlaxi

Arnarlax (Icelandic Salmon) skilaði neikvæðri rekstrarniðurstöðu á þriðja ársfjórðungi.
Arnarlax (Icelandic Salmon) skilaði neikvæðri rekstrarniðurstöðu á þriðja ársfjórðungi. mbl.is/Þorsteinn

Rekst­ur fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arn­ar­lax tekst nú á við háan kostnað og litla fram­leiðslu. Hef­ur velta fé­lags­ins dreg­ist sam­an um tæp 67% eða úr 41,9 millj­ón­um evra í 14,3 millj­ón­ir evra, það er rúm­lega sex millj­örðum ís­lenskra króna í um tvo milj­arða ís­lenskra króna.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu til norsku kaup­hall­ar­inn­ar þar sem eign­ar­halds­fé­lag fyr­ir­tæk­is­ins (Icelandic Salmon) er skráð. Þar er farið yfir upp­gjör þriðja árs­fjórðungs og er þar bent á að um þriggja millj­óna evra tap var á rekstr­in­um án til­liti til skatta og fjár­magnsliða (EBIT) á tíma­bil­inu. Til sama­b­urðar skilaði fé­lagið þriggja millj­óna evra hagnað sama árs­fjórðung 2023.

Sam­drátt­inn er sagður stafa af lít­illi fram­leiðslu og áfram­hald­andi líf­fræðileg­um áskor­un­um frá því fyrr á ár­inu, sem leiddi til ein­skipt­is­kostnaðar upp á 0,4 millj­ón­ir evra. Rekstr­arniðurstaða á hvert fram­leitt kíló af laxi var nei­kvæð um 1,71 evru á þriðja árs­fjórðungi, en ef leiðrétt fyr­ir ein­skipt­is­kostnaðinn var hún nei­kvæð um 1,46 evru.

Aðeins 1.750 tonn­um var slátrað úr sjókví­um fé­lags­ins á Vest­fjörðum á þriðja árs­fjórðungi, en rúm fjög­ur þúsund tonn­um var slátrað á sama tíma­bili í fyrra. „Slát­ur­magn hef­ur auk­ist frá því sem var á fyrri árs­fjórðungi, en hélst í lág­marki þar sem sam­stæðan lagði áherslu á líf­frí­lega upp­bygg­ingu,“ seg­ir í til­kynn­ingu fé­lags­ins.

Binda von­ir við ár­ang­ur aðgerða

„Á þriðja árs­fjórðungi náði Icelandic Salmon stöðug­leika í kjöl­far líf­fræðilegra áskor­ana frá síðasta vetri og vori. Slát­ur­magn hélst lítið sem hafði áhrif á árs­fjórðungs­upp­gjör. Hins veg­ar hef­ur áhersla sam­stæðunn­ar á vöxt líf­massa byggt upp traust­an grunn fyr­ir bata og framtíðar­vöxt,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Áætlan­ir gera ráð fyr­ir að fram­leiðsla árs­ins nái 13 þúsund tonn­um og að fram­leiðslan vaxi á næsta ári í 15 þúsund tonn.

Björn Hembre forstjóri Icelandic Salmon segir unnið að því að …
Björn Hembre for­stjóri Icelandic Salmon seg­ir unnið að því að koma fram­leiðslunni í 26 þúsund tonn á nú­ver­andi leyf­um. mbl.is/​Hari

Kveðst fé­lagið binda von­ir við að nýj­ar aðgerðir til að verj­ast fiskilús, auk­in út­setn­ing seiða og fjár­fest­ing­ar í seiðastöðvum skili bættri af­komu þegar fram líða stund­ir.

„Til lengri tíma litið sjá­um við veru­leg­an vaxt­ar­mögu­leika allt að 26.000 tonn á nú­ver­andi leyf­um okk­ar og erum full­viss um að við get­um náð þessu mark­miði. Þessi metnaður er í takt við sýn sam­starfsaðila okk­ar og við eig­um í nánu sam­tali við yf­ir­völd, lán­veit­end­ur og aðra sam­starfsaðila til að knýja áfram þenn­an vöxt,“ seg­ir Björn Hembre for­stjóri fé­lags­ins í til­kynn­ing­unni.

mbl.is