Ræða sjókvíaeldið fyrir opnum dyrum

Mynd um sjókvíaeldi verður sýnd í Háskólabíói í kvöld og …
Mynd um sjókvíaeldi verður sýnd í Háskólabíói í kvöld og má búast við líflegum umræðum að sýningu lokinni.

Fram­bjóðend­ur átta fram­boða hafa staðfest þátt­töku í pall­borðsum­ræðum um sjókvía­eldi að lok­inni sýn­ingu mynd­ar­inn­ar „Árnar þagna“ eft­ir Óskar Pál Sveins­son í Há­skóla­bíói í kvöld.

Viðburður­inn sem hefst klukk­an 20 í kvöld er öll­um op­inn á meðan pláss er, en þetta er ekki í fyrsta sinn sem slík­ur viðburður er hald­inn vegna sýn­ingu mynd­ar­inn­ar. Var þessi hátt­ur á einig þegar mynd­in var frum­sýnd á Ak­ur­eyri 6. nóv­em­ber.

Þeir fram­bjóðend­ur sem hafa boðað þátt­töku sína eru:

  • Sam­fylk­ing­in - Þór­unn Svein­bjarn­ar­dótt­ir
  • Pírat­ar - Hall­dóra Mo­gensen
  • Flokk­ur fólks­ins - Inga Sæ­land
  • VG - Finn­ur Ricart Andra­son
  • Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn - Guðlaug­ur Þór Þórðar­son
  • Viðreisn - Þor­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dótt­ir
  • Lýðræðis­flokk­ur­inn - Arn­ar Þór Jóns­son
  • Sósí­al­ista­flokk­ur­inn - Guðmund­ur Hrafn Arn­gríms­son

Í kynn­ingu mynd­ar­inn­ar seg­ir: „Í júní á þessu ári fyr­ir­skipaði Um­hverf­is­stofn­un Nor­egs lok­un á 33 af þekkt­ustu laxveiðiám Nor­egs vegna skaðans sem sjókvía­eldi á laxi og lofts­lags­breyt­ing­ar hafa valdið á villt­um laxa­stofn­um. Á einu augna­bliki hvarf stór hluti lifi­brauðs fjöl­skyldna sem hafa byggt af­komu sína á hlunn­ind­um af stang­veiði í marga ættliði. Í mynd­inni eru viðtöl við eig­end­ur norskra laxveiðiáa, sem tek­in voru nokkr­um dög­um eft­ir að fót­un­um var kippt und­an til­veru þeirra, og fólk í sveit­um Íslands um þá framtíð sem mögu­lega bíður þess og fjöl­skyldna þeirra.“

mbl.is