Frestuðu slátrun til að hámarka verð

Kaldvík gerir ráð fyrir að slátra um 15 þúsund tonnum …
Kaldvík gerir ráð fyrir að slátra um 15 þúsund tonnum af laxi upp úr kvíum sínum á þessu ári. mbl.is/Helgi Bjarnason

Á fyrstu þrem árs­fjórðung­um 2024 hef­ur Kald­vík slátrað 8.298 tonn­um af laxi úr kví­um sín­um á Aust­fjörðum og er það um­tals­vert meira en á sama tíma­bili í fyrra er slátrað var 4.395 tonn­um. Þá voru tekj­ur 60,9 millj­ón­ir evra, jafn­v­irði tæpra 9 millj­arða króna, en var 39,9 millj­ón­ir evra á fyrstu þrem árs­fjórðung­um í fyrra.

Þetta má lesa úr upp­gjöri Kald­vík­ur vegna þriðja árs­fjórðungs 2024.

Fram kem­ur að 3.798 tonn­um var slátrað í fjórðungn­um og að tekj­ur voru 24,5 millj­ón­ir evra. Þá greiddi fé­lagið tæp­lega 950 þúsund evr­ur í eld­is­gjald og var rekstr­ar­hagnaður­inn (EBIT) um 2,1 millj­ón.

Nýttu vaxt­ar­tíma hausts­ins

Fyr­ir­tækið ger­ir ráð fyr­ir að slátra um 6.700 tonn­um á fjórða árs­fjórðungi. Þá er ætlað að frama­leiðsla árs­ins 2024 nái um 15 þúsund tonn­um, sem er þó um 2.500 tonn­um minna en gert var ráð fyr­ir í síðustu áætl­un. Kald­vík er með mark­mið um að koma fram­leiðslunni í 30 þúsund tonn.

Greint er frá því í upp­gjör­inu að Kald­vík hafi tekið ákvörðun um að breyta skipu­lagi slátrunn­ar í þeim til­gangi að há­marka fram­leiðslu og arðsemi. „Verð á 3. árs­fjórðungi var lægra en bú­ist var við ásamt því að 3. árs­fjórðung­ur er góður vaxtar­fjórðung­ur fyr­ir fisk­inn. Ákvörðun um að seinka hluta af fyr­ir­huguðu slát­ur­magni mun þannig gera okk­ur kleift að nýta vaxt­ar­skeiðið í sjó og há­marka verð.“

Jafn­framt seg­ir að aldrei hafi heilsa fiska í kví­um Kald­vík­ur verið betri en á þriðja árs­fjórðungi. „All­an fjórðung­inn sáum við tak­markaða dán­artíðni og gæði fisks­ins eru góð. Það gladdi okk­ur að sjá tak­mörkuð áhrif vegna árs­tíma þar sem mar­glytt­ur eru al­geng­ar, sem við rekj­um til aðgerða sem gripið hef­ur verið til til að tak­marka líf­fræðilega áhættu með til­liti til mar­glyttna,“ seg­ir í upp­gjör­inu.

Kald­vík AS er eign­ar­halds­fé­lag sem fer með alla hluti í Kald­vík hf. (áður Fisk­eldi Aust­fjarða hf.) og  66,7% hlut í Bú­landstindi ehf.

„Þetta er fín niðurstaða sér­sta­kelga þegar litið er til hvernig verðið þróaðist í árs­fjórðungn­um. Með auk­inni fram­leiðslu þá náum við betri nýt­ingu á slát­ur­stöð og brunn­bát­um fé­lags­ins,"seg­ir Ró­bert Ró­berts­son fjár­mála­stjóri Kald­vík­ur.

„Þá er virki­lega gott að sjá að þær fjár­fest­ing­ar sem við höf­um lagt í síðustu miss­eri og ár eru að skila sér í betri gætðum, en eins og kom fram í upp­gjör­inu þá er lif­un í sjó síðustu 12 mánuði í kring­um 94%, sem er frá­bært.“ 

Upp­fært kl 13:25. Fram­leiðslu­töl­ur og af­koma á þirðja árs­fjórðungi sem fyrst var vísað til byggði á gögn­um um sama árs­fjórðung á síðasta ári. Töl­urn­ar hafa verið upp­færðar þannig að upp­lýs­ing­arn­ar sýni niður­stöðu á þriðja árs­fjórðungi 2024.

mbl.is