Vantar stöðugleika í framboði af laxi

Bjarni Rúnar Heimisson, framkvæmdarstjóri Reiknistofa fiskmarkaða, segir skorta vilja framleiðenda …
Bjarni Rúnar Heimisson, framkvæmdarstjóri Reiknistofa fiskmarkaða, segir skorta vilja framleiðenda á laxi til að tryggja framboð á laxi á innlendum fiskmörkuðum. mbl.is{Eyþór Árnason

Illa hef­ur gengið að tryggja stöðugt fram­boð af ís­lensk­um eld­islaxi á inn­lend­um fisk­mörkuðum og hafa aðeins verið seld um markaðina um 22 tonn það sem af er ári.

„Þetta er af­skap­lega lítið. Það er áhugi fyr­ir að kaupa og selja þetta en vant­ar bara að keyra á það,“ seg­ir Bjarni Rún­ar Heim­is­son fram­kvæmda­stjóri Reikni­stofu fisk­markaða (RFS) í sam­tali við 200 míl­ur.

Það þóttu mik­il tíðindi 23. nóv­em­ber á síðasta ári er Arctic Fish seldu í fyrsta sinn lax úr sjókví­um sín­um á Vest­fjörðum á inn­lend­um fisk­mörkuðum, um tvo tonn. Lax­eld­is­fé­lög­in selja nán­ast alla sína fram­leiðslu sjálf eða í gegn­um eig­in sölu­fé­lög beint á er­lenda markaði.

Tölu­verð eft­ir­spurn hef­ur verið eft­ir lax­in­um hjá ís­lensk­um afurðastöðvum, fisk­söl­um og veit­inga­hús­um. Bundn­ar voru von­ir við að sal­an fyr­ir ári síðan væri upp­hafið að nýju skeiði sem myndi skila nýj­ung í ís­lensk­an fiskiðnað.

Spurður hvernig hafi tek­ist til svar­ar Bjarni: „Nei það hef­ur vantað stöðug­leika í fram­boði og bara al­vöru skuld­bind­ingu til að koma þessu þarna inn af ein­hverju viti. Það vant­ar vilj­ann til að prófa sig áfram og skapa orðspor um stöðug­leika. Það er erfitt að selja eitt­hvað sem er ekki alltaf til.“

Hann bend­ir á að aðrar fisk­teg­und­ir séu nán­ast alla sölu­daga til á fisk­mörkuðum lands­ins, þó í mis­miklu magni.

Góð sala á er­lenda markaði

Íslensku lax­eld­is­fé­lög­un­um hef­ur gengið vel að selja afurðir sín­ar á er­lenda markaði, að því sem 200 míl­ur kom­ast næst. Eft­ir­spurn eft­ir laxi sveifl­ast eft­ir árstíð á er­lend­um mörkuðum og er reynt eft­ir bestu getu að stilla af eldi og slát­urtíð þannig að hægt sé að há­marka verð hverju sinni.

Þá herma heim­ild­ir 200 mílna að sum eld­is­fyr­ir­tæk­in finna fyr­ir slíkri eft­ir­spurn að kaup­end­ur óska eft­ir meiri magni en fyr­ir­tæk­in eru að fram­leiða. Vert er þó að geta þess að fyr­ir­tækj­un­um hef­ur ekki enn tek­ist að ful­lýta þau leyfi til sjókvía­eld­is sem þau hafa nú þegar, nem­ur ár­leg fram­leiðsla í dag  mögu­lega um helm­ing þess sem fyr­ir­tæk­in gætu fram­leitt ef allt gangi að ósk­um í rekstr­in­um.

Einnig hafa verið nokkr­ar áskor­an­ir í fram­leiðslu á eld­islaxi hér á landi og var árs­fram­leiðsla lax úr sjókvía­eldi 40.847 tonn á síðasta ári sem er um tvö þúsund tonn­um minni fram­leiðsla en árið 2022 og tæp fjög­ur þúsund tonn minna en 2021, en það var mesta fram­leiðslu­ár sjókvía­eld­is frá upp­hafi.

mbl.is