#52. - Reynsluboltar rýna í stöðuna

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Geir Haar­de fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráðherra rýndi í stöðuna í stjórn­mál­un­um í nýj­asta þætti Spurs­mála nú þegar inn­an við sól­ar­hring­ur er í að kjörstaðir verði opnaðir. Hon­um til fullting­is var Björt Ólafs­dótt­ir fyrr­ver­andim ráðherra, sem hef­ur ýmsa fjör­una sopið í póli­tík­inni, meðal ann­ars óvænt stjórn­arslit árið 2017.

    Þátt­ur­inn var sýnd­ur hér á mbl.is fyrr í dag. Upp­töku af þætt­in­um má nálg­ast í spil­ar­an­um hér að ofan, á Spotify og YouTu­be og er hún öll­um aðgengi­leg. 

    Örlaga­dag­arn­ir gerðir upp

    Í þætt­in­um var Geir spurður út í nýja ævi­sögu sem hann hef­ur gefið út. Þar fjall­ar hann meðal ann­ars um ör­laga­dag­ana í októ­ber 2008 þar sem hann leiddi þjóðina í gegn­um einn mesta ólgu­sjó sem brotið hef­ur á sam­fé­lag­inu fyrr og síðar. Hvernig var Geir inn­an­brjósts þegar hann ávarpaði þjóðina og bað Guð að blessa Ísland?

    Er komið gott?

    Í síðari hluta þátt­ar­ins mættu stöll­urn­ar Ólöf Skafta­dótt­ir og Krist­ín Gunn­ars­dótt­ir. Þær halda úti hlaðvarp­inu Komið gott, og þær eru þekkt­ar fyr­ir hisp­urs­lausa umræðu og vægðarleysi gagn­vart því fólki sem er til um­fjöll­un­ar hverju sinni. Hver veit nema þær snúi tafl­inu við á vett­vangi Spurs­mála.

    Fylgstu með líf­legri og upp­lýs­andi sam­fé­lagsum­ræðu í Spurs­mál­um hér á mbl.is.

    Ólöf Skaftadóttir, Kristín Gunnarsdóttir, Geir H. Haarde og Björt Ólafsdóttir …
    Ólöf Skafta­dótt­ir, Krist­ín Gunn­ars­dótt­ir, Geir H. Haar­de og Björt Ólafs­dótt­ir eru gest­ir í nýj­asta þætti Spurs­mála. Sam­sett mynd/​María Matth­ías­dótt­ir
    mbl.is

    Bloggað um frétt­ina