Samkomulag um fjármögnun First Water

Eggert Þór Kristófersson, forstjóri First Water.
Eggert Þór Kristófersson, forstjóri First Water. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Land­eld­is­fyr­ir­tækið First Water hef­ur náð sam­komu­lagi við Lands­bank­ann og Ari­on banka um 80 millj­ón evra fjár­mögn­un, sem sam­svar­ar um 12 millj­örðum ís­lenskra króna.

Í til­kynn­ingu frá First Water, Ari­on banka og Lands­bank­an­um seg­ir að sam­komu­lagið sé mik­il­væg­ur áfangi í upp­bygg­ingu First Water og er með hefðbundn­um fyr­ir­vör­um. Stefnt er að því að stækka þessa fjár­mögn­un síðar eft­ir því sem verk­efn­inu vind­ur fram. First Water vinn­ur að upp­bygg­inu hágæða mat­væla­fram­leiðslu við Laxa­braut í Þor­láks­höfn.

„Fjár­mögn­un á verk­efni af þess­ari stærðargráðu er eðli­lega krefj­andi ferli og við get­um því ekki verið annað en sátt við þátt­töku ís­lenskra banka í verk­efn­inu. Við erum þakk­lát Ari­on banka og Lands­bank­an­um fyr­ir það traust sem okk­ur er sýnt og erum spennt fyr­ir framtíðinni og þeim tæki­fær­um sem vandað lax­eldi á landi býður upp á,“ er haft eft­ir Eggerti Þór Kristó­fers­syni, for­stjóra Firt Water í til­kynn­ing­unni.

Eru að byggja 50.000 tonna land­eld­is­stöð

First Water er að byggja 50.000 tonna land­eld­is­stöð við Laxa­braut í Þor­láks­höfn í 6 fös­um og munu rúm­lega 300 manns starfa hjá fyr­ir­tæk­inu árið 2029 en í dag eru starfs­menn um 80, þá mun starf­semi fé­lags­ins að auki skapa allt að 300 af­leidd störf. Fé­lagið mun einnig byggja fisk­vinnslu­hús og seiðaeldi á Laxa­braut á næstu árum. Lax­inn verður al­inn í kerj­um á landi við kjöraðstæður í hrein­um jarðsjó sem er dælt upp í gegn­um hraun­lög. 

„Það verður mjög spenn­andi að fylgj­ast með þeirri upp­bygg­ingu sem fram und­an er hjá First Water. Fé­lagið bæt­ist í góðan hóp fisk­eld­is­fé­laga sem Ari­on banki hef­ur lagt lið á und­an­förn­um árum og mynda nú mik­il­væga at­vinnu­grein, bæði fyr­ir fjöl­mörg byggðarlög lands­ins en einnig fyr­ir ís­lenskt efna­hags­líf,“ seg­ir Bene­dikt Gísla­son, banka­stjóri Ari­on Banka.

Lilja Björk Ein­ars­dótt­ir, banka­stjóri Lands­bank­ans seg­ist vera ánægð með að geta stutt við spenn­andi og metnaðarfull áform First Water um sjálf­bært land­eldi.

„Fyr­ir­tækið hef­ur nú þegar náð eft­ir­tekt­ar­verðum ár­angri og framtíðaráætlan­ir þess byggja á traust­um og vönduðum und­ir­bún­ingi. Við telj­um all­ar for­send­ur til að First Water muni halda áfram að vaxa og dafna,“ seg­ir Lilja.

mbl.is