Fyrstu seiðin komin í Viðlagafjöru

Starfsfólk Laxeyjar tókst með góðum hætti að flytja seiðin í …
Starfsfólk Laxeyjar tókst með góðum hætti að flytja seiðin í stórseiðastöðina. Ljósmynd/Laxey

Fyrstu seiðin hafa verið flutt úr seiðastöð Lax­eyj­ar í Vest­manna­eyj­um í stór­seiðahús fé­lags­ins í Viðlaga­fjöru, en þaðan verða þau síðan flutt í eldisker­in þegar þau eru orðin nægi­lega stór.

Fram kem­ur í færslu á vef Lax­eyj­ar að flutn­ing­arn­ir frá seiðastöðinni heppnuðust vel.

„Til að tryggja far­sæl­an flutn­ing þurfti allt að ganga upp – fram­kvæmd­ir þurftu að vera á áætl­un, all­ur tækni­búnaður upp­sett­ur, gang­sett­ur og prófaður. Mikið hrós og tækni- og fram­kvæmd­art­eymi fé­lags­ins til að tryggja að stór­seiðahúsið sé klárt á tíma. Mik­il vinna hef­ur því farið fram und­an­farn­ar vik­ur til að und­ir­búa þetta skref. Stemn­ing­in hef­ur verið frá­bær, og all­ir ein­beitt­ir og staðráðnir í að láta flutn­ing­inn ganga upp,“ seg­ir í færsl­unni.

Allt er sagt hafa gengið að ósk­um og aðlag­ast seiðin vel að nýju um­hverfi.

mbl.is