Sveiflukennt ár fyrir laxeldið

Sveiflur á mörkuðum fyrir lax hafa verið meiri en undanfarin …
Sveiflur á mörkuðum fyrir lax hafa verið meiri en undanfarin ár og og hefur meðalverð verið bæði hærra og lægra en í fyrra. Ljósmynd/Icelandic Salmon

Markaðir fyr­ir lax hafa ein­kennst af mikl­um sveifl­um á ár­inu 2024. Hófst árið með óvenju­háu verði og fram­leiðslu­aukn­ingu en stór­auk­in sam­keppni leiddi til verðhruns um mitt ár. Hef­ur meðal­verð á laxi á alþjóðleg­um mörkuðum hald­ist und­ir meðal­verði síðasta árs. Verð er þó hátt í sögu­legu sam­hengi, að því er fram kem­ur í Morg­un­blaðinu í dag.

Verð á laxi er háð mikl­um árstíðasveifl­um og er lægst yfir sum­ar og haust en hækk­ar eft­ir það jafnt og þétt og nær há­marki á vor­mánuðum í kring­um páska. Það varð einnig raun­in í ár og náði meðal­verð í apríl 130,67 norsk­um krón­um sem er hæsta meðal­verð í stök­um mánuði sem nokk­urn tíma hef­ur sést. Um er að ræða 1.643,44 ís­lensk­ar krón­ur á hvert kíló af slátruðum laxi.

Ekki var ein­tóm gleði því verð tók fljótt að lækka og varð al­gjört hrun milli maí og júní þegar meðal­verð féll um 33,7%. Aldrei hef­ur meðal­verð fallið jafn mikið og fékkst lægsta verð í sept­em­ber þegar það var aðeins 71,56 norsk­ar krón­ur á kíló, hafði það ekki verið lægra síðan janú­ar 2022.

Hang­ir þetta vel sam­an við þróun fram­leiðslunn­ar en fram­leiðsla á eld­islaxi í Nor­egi, sem er stærsta fram­leiðslu­landið á heimsvísu, var tölu­vert minni á fyrstu fjór­um mánuðum árs­ins en á sama tíma­bili 2023 og enn minni en 2022. Þegar leið á sum­ar fór fram­boð af norsk­um eld­islaxi að vaxa ört. Á fyrstu tíu mánuðum árs­ins hafa Norðmenn flutt út 1.014.952 tonn af laxi og er það meiri lax en þeir fluttu út allt árið í fyrra.

 Um­fjöll­un­ina má lesa í heild í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: