Vel heppnað loðnueldi

Loðnulirfur 39 dögum eftir klak. Þrjár stærstu lirfurnar eru um …
Loðnulirfur 39 dögum eftir klak. Þrjár stærstu lirfurnar eru um það bil 21 millimetri að lengd en sú minnsta er 16 millimetrar. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun

Vís­inda­menn á til­rauna­eld­is­stöð Haf­rann­sókna­stofn­un­ar hafa í fyrsta sinn ræktað loðnu frá klaki til full­orðins­ald­urs í eld­is­um­hverfi, að því er seg­ir á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar. Fram kem­ur að loðnu­hrogn voru frjóvguð um borð í Vík­ingi AK-100, upp­sjáv­ar­skipi Brims hf., og voru síðan flutt þaðan í til­rauna­eld­is­stöðina á Stað við Grinda­vík. Þar klökt­ust lirf­urn­ar út 30 dög­um síðar.

Greint er frá því að rækt­un loðnul­irf­anna hafi byggst á sam­bæri­leg­um eldisaðferðum og hafa verið þróaðar í eld­is­stöðinni til eld­is á þorski með góðum ár­angri. „Við stöðugt hita­stig (7°C) var vöxt­ur loðnunn­ar jafn og ör, og fyrstu loðnurn­ar náðu kynþroska aðeins ári frá klaki. Á öðru ári dró úr vexti, og loðnan náði há­marks­lengd, 18,4 cm, á aðeins 2,6 árum, sem er um­tals­vert skemmri tími en hjá villtri ís­lenskri loðnu,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Loðnan er afar viðkvæm fyr­ir meðhöndl­un en stutt­ur líf­tími henn­ar ger­ir hana að efni­legu til­rauna­dýri, að mati vís­inda­manna.

Inn­sýn í vaxt­ar- og líf­fræði

Birt var grein um rann­sókn­ina í vís­inda­tíma­rit­inu Fis­hes ný­verið und­ir heit­inu „Culti­vati­on and Growth Dynamics of Cap­el­in (Mallot­us vil­los­us) from Hatch to Adult­hood“. Höf­und­ar henn­ar eru Tóm­as Árna­son, Birk­ir Bárðar­son og Agn­ar Stein­ars­son.

Rann­sókn­in er sögð veita mik­il­væga inn­sýn í vaxtar­fræði og líf­fræði loðnunn­ar sem er mik­il­væg teg­und bæði sem hluti af vist­kerfi sjáv­ar en einnig sem nytja­stofn. Einnig er rann­sókn­in tal­in leggja grunn að frek­ari loðnu­rann­sókn­um í til­raunaum­hverfi.

Nú þegar hef­ur verið haf­ist handa við fram­kvæmd frek­ari loðnu­rann­sókna í til­rauna­eld­is­stöðinni og er gert ráð fyr­ir að niður­stöður þeirra verði birt­ar á næstu árum.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: