Slátrað úr kvíum við Haukadalsbót

Brunnbáturinn sækir fisk í kvíar við Haukadalsbót í Dýrafirði.
Brunnbáturinn sækir fisk í kvíar við Haukadalsbót í Dýrafirði. Ljósmynd/Arctic Fish

Unnið hef­ur verið að því und­an­farna daga að slátra úr kví­um Arctic Fish við Hauka­dals­bót í Dýraf­irði. Fram kem­ur í færslu á Face­book-síðu fyr­ir­tæk­is­ins  að gengið hafi mjög vel og að fisk­ur­inn sé fal­leg­ur og af góðum gæðum.

Afl­an­um er komið til vinnslu í Bol­ung­ar­vík með brunn­skip­inu Nova Trans. Að lok­inni lönd­un um há­degi sigl­ir Nova Trans til Dýra­fjarðar og byrj­ar að sækja nýj­an skammt fyr­ir næsta dag, um 80 til 110 tonn af laxi hvert skipti.

„Þegar þeir koma þangað er starfs­fólk okk­ar í Dýraf­irði búið að gera klárt fyr­ir af­hend­ingu. Það er gert þannig að nót­inni er lyft og kast­nót er sett út sem þreng­ir að fisk­in­um upp að brunn­bát­in­um sem sýg­ur hann um borð lif­andi. Þaðan er svo siglt í Bol­ung­ar­vík þar sem að slátrun hefst í morg­uns­árið,“ seg­ir í færsl­unni.

Það tek­ur alla jafna um sex til tíu vinnslu­daga að klára úr hverri kví en um tíu kví­ar eru á hverju eld­is­svæði.

Laxinum er dælt um borð lifandi.
Lax­in­um er dælt um borð lif­andi. Ljós­mynd/​Arctic Fish
Þrengt er að fiskinum með nót og einfaldar það dælinguna.
Þrengt er að fisk­in­um með nót og ein­fald­ar það dæl­ing­una. Ljós­mynd/​Arctic Fish
mbl.is