#57. - Hvað gerir Bjarni Benediktsson á nýju ári?

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Bjarni Bene­dikts­son hef­ur verið formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins frá 2009. Í fyrsta sinn í 11 ár er hann í stjórn­ar­and­stöðu á þingi. Mun hann halda áfram sem formaður á nýju ári og hvenær fer lands­fund­ur fram?

    Svara við þess­um spurn­ing­um er leitað í nýj­asta þætti Spurs­mála þar sem Bjarni sjálf­ur mætti í settið og sat fyr­ir svör­um.

    Þátt­ur­inn var sýnd­ur hér á mbl.is fyrr í dag en upp­töku af hon­um má nálg­ast í spil­ar­an­um hér að ofan, á Spotify og YouTu­be og er hún öll­um aðgengi­leg.

    Mis­tök eða óhjá­kvæmi­leg ákvörðun?

    Í þætt­in­um svaraði Bjarni einnig spurn­ing­um um þá ákvörðun sína að efna til kosn­inga þann 30. nóv­em­ber síðastliðinn. Voru það mis­tök af hans hálfu eða var ákvörðunin óhjá­kvæmi­leg?

    Eins var Bjarni spurður út í efni nýs stjórn­arsátt­mála Sam­fylk­ing­ar, Viðreisn­ar og Flokks fólks­ins.

    Spá­dómskúl­an á lofti

    Í fyrri hluta þátt­ur­inn var rætt við þau Björn Inga Hrafns­son, rit­stjóra Vilj­ans og Vig­dísi Häsler, verk­efna­stjóra Kleifa fisk­eld­is á Sigluf­irði. Þar rýndu þau í póli­tík­ina, bæði það sem gerst hef­ur nú þegar en einnig spá þau í spil­in um það sem framund­an er.

    Fylgstu með Spurs­mál­um hér á mbl.is alla föstu­daga klukk­an 14.

    Vigdís Häsler, Bjarni Benediktsson og Björn Ingi Hrafnsson eru gestir …
    Vig­dís Häsler, Bjarni Bene­dikts­son og Björn Ingi Hrafns­son eru gest­ir Stef­áns Ein­ars Stef­áns­son­ar í Spurs­mál­um að þessu sinni. Sam­sett mynd/​mbl.is/​Kristó­fer Lilj­ar
    mbl.is

    Bloggað um frétt­ina