Rannsaka mikinn seiðadauða í Fáskrúðsfirði

Fiskeldi Kaldvíkur.
Fiskeldi Kaldvíkur. mbl.is/Þorgeir

Mat­væla­stofn­un (MAST) hef­ur til rann­sókn­ar hvers vegna rúm­lega 600 þúsund laxa­seiði dráp­ust í nóv­em­ber og byrj­un des­em­ber í Fá­skrúðsfirði stuttu eft­ir að þeim var sleppt í sjókví­ar.

Rúv greindi frá þessu í gær en sjór­inn í firðinum hef­ur verið óvenju kald­ur og MAST kref­ur Kald­vík um skýr­ing­ar á því að seiði hafi verið flutt við slík­ar aðstæður. 

Seiðin voru send til Nor­egs í krufn­ingu en ekki fund­ust af­ger­andi merki um sjúk­dóma. Því er talið að mögu­lega hafi óvenju kald­ur sjór eða vont veður við flutn­ing­inn hafi haft áhrif. 

Seiðin voru flutt bæði frá Ri­fósi og Ölfusi. Áber­andi var hve mikið af seiðunum úr Ölfusi hafi drep­ist og gæti það verið vegna gas­bólu­veiki sem er þekkt í seiðum þaðan.

Í svör­um Kald­vík­ur kom fram að út­setn­ing­in hafi taf­ist og að ferl­um hafi verið breytt til að koma í veg fyr­ir sam­bæri­leg­ar aðstæður. Seiðadauðinn hafði ekki telj­andi áhrif á starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins. 

mbl.is