Met sett í vinnslunni í október

Frá vinnslunni á Bíldudal.
Frá vinnslunni á Bíldudal. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason

Mik­il út­flutn­ings­verðmæti eru sköpuð á Bíldu­dal við Arn­ar­fjörð með vinnslu á eld­islaxi í vinnslu­húsi Arn­ar­lax.

Ef ein­ung­is er litið til októ­ber- og nóv­em­ber­mánaða námu út­flutn­ings­verðmæti frá þessu tæp­lega 300 manna þorpi um 5 millj­örðum króna en Bíldu­dal­ur til­heyr­ir sveit­ar­fé­lag­inu Vest­ur­byggð eins og Pat­reks­fjörður og Tálkna­fjörður. At­hygli er vak­in á þess­um töl­um hjá Bæj­ar­ins besta á Ísaf­irði (bb.is) en miðað er við að þúsund tonn af laxi skili um millj­arði í út­flutn­ings­tekj­ur.

Hjört­ur Met­húsalems­son, yf­ir­maður viðskiptaþró­un­ar­deild­ar hjá Arn­ar­laxi, staðfesti við Morg­un­blaðið að fimm þúsund tonn hefðu verið unn­in í vinnslu­hús­inu á Bíldu­dal í októ­ber og nóv­em­ber.

50 millj­arðar á ár­inu?

Októ­ber var met­mánuður í vinnsl­unni þegar þar fóru í gegn þrjú þúsund tonn af eld­islaxi á ein­um mánuði í fyrsta skipti. Í nóv­em­ber voru það því um tvö þúsund tonn. Jafn­framt braut Arn­ar­lax 100 þúsund tonna múr­inn í fram­leiðslunni á síðasta ári, eins og kom fram á 200 míl­um á mbl.is í síðasta mánuði, og mun það vera ígildi 500 millj­ón máltíða. Fyr­ir­tækið var stofnað árið 2010.

Lesa má nán­ar um málið í Morg­un­blaðinu í dag

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: