Jónbjörn setti nafn sitt á nýja tegund

Jónbjörn Pálsson, er sérfræðingur Hafró í sjaldgæfum fiskum. Ný kuðungategund …
Jónbjörn Pálsson, er sérfræðingur Hafró í sjaldgæfum fiskum. Ný kuðungategund ber nafn hans, en hér heldur hann á vænum karfa. mbl.is/Styrmir Kári

Ný kuðunga­teg­und upp­götvaðist við Íslands­strend­ur ný­verið. Í færslu á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar er slíkt sagt sjald­gæft og að um sé að ræða afrakst­ur mik­ill­ar vinnu.

„Nýja teg­und­in hef­ur verið nefnd eft­ir fyrr­um starfs­manni Haf­rann­sókna­stofn­un­ar Jón­birni Páls­syni og heit­ir Bucc­in­um pals­soni Fraus­sen, Delongu­eville & Scaill­et, 2024, en teg­und­in hef­ur enn ekki fengið ís­lenskt nafn,“ seg­ir í færsl­unni.

Nýi kuðungurinn; Buccinum palssoni Fraussen, Delongueville & Scaillet, 2024.
Nýi kuðung­ur­inn; Bucc­in­um pals­soni Fraus­sen, Delongu­eville & Scaill­et, 2024. Lj´somynd/​Haf­rann­sókna­stofn­un

Kuðung­ur­inn er um 3 cm á hæð og til­heyr­ir ætt­kvísl­inni Bucc­in­um eins og beitu­kóng­ur.

Upp­götv­un­ina má rekja til sam­starfs Jón­björns og belg­ísku dýra­fræðing­anna Christia­ne Delongu­eville og Roland Scaill­et.

„Jón­björn starfaði um ára­bil við haf­rann­sókn­ir. Eft­ir hann ligg­ur fjöldi greina um líf­fræði hafs­ins og er hann ann­ar höf­unda bók­ar­inn­ar Íslensk­ir fisk­ar. Jón­björn er vel að þess­um heiðri kom­inn og ósk­ar Haf­rann­sókna­stofn­un hon­um inni­lega til ham­ingju,“ seg­ir í færsl­unni.

mbl.is