Opnar kvíar bannaðar á vesturströnd BNA

Eldi í opnum sjókvíum hefur verið bannað í Washington-ríki. Með …
Eldi í opnum sjókvíum hefur verið bannað í Washington-ríki. Með því er slík starfsemi bönnuð á allri vesturströnd Bandaríkjanna. Ljósmynd/Daniel Schwen

Auðlindaráð Washingt­on-rík­is (Bo­ard of Natural Resources) samþykkti í síðustu viku bann við eldi í opn­um sjókví­um í rík­inu. Fyr­ir eru slík bönn í Kali­forn­íu, Or­egon og Alaska, er því með ákvörðun­inni búið að banna eldi í opn­um sjókví­um á allri vest­ur­strönd Banda­ríkj­anna.

Ekki verður þó öll strand­lengja Norður-Am­er­íku án sjókvía­eld­is. Enn er heim­ilt að stunda sjókvía­eldi í opn­um kví­um í Bresku Kól­omb­íu í Kan­ada. Til stóð að leggja fyr­ir kanadíska þingið frum­varp um bann við slíku eldi frá miðju ári 2029, en með af­sögn for­sæt­is­ráðherr­ans Just­in Trudeau er orðin tölu­verð óvissa um það hvort verður af slík­um áform­um.

Löng deila

Deilt hef­ur verið um í ára­bil í Washingt­on-ríki um bann við eldi í opn­um sjókví­um en grein­in hef­ur upp­lifað sí­fellt aukna mót­byr í takti við álits­hnekki und­an­far­in ár. Stærsti skell­ur­inn var lík­lega árið 2017 þegar 250 þúsund eld­islax­ar sluppu úr sjókví í Pu­get-sund.

Fyrst var reynt að setja bann 2022, en það var fellt úr gildi með dómi árið 2023.

„Það er til fólk sem finnst í lagi að líta fram­hjá áhætt­unni vegna skamm­tíma­gróða,“ hef­ur Seattle Times eft­ir Emma Hel­ver­son, fram­kvæmda­stjóra Wild Fish Conservancy, sem af­henti ráðinu meira en 3.000 und­ir­skrift­ir til stuðnings banns­ins auk stun­ings­yf­ir­lýs­ing­ar frá fleiri en 180 sam­tök­um.

„Lax­inn okk­ar hef­ur haft nóg af áskor­un­um og þarf ekki þess­ar fóðrun­ar­stöðvar,“ sagði Jeremy Wil­b­ur formaður Sw­in­om­ish ætt­bálks­ins.

Ekki all­ir fylgj­andi

Ekki voru þó all­ir á einu máli og studdi S´Kallam ætt­bálk­ur­inn, sem á stór­an hlut í eld­is­fyr­ir­tæki á svæðinu, áfram­hald­andi sjókvía­eldi þar sem grein­in veiti mik­il­væg at­vinnu­tæki­færi.

John Fiorillo, rit­stjóri Intrafish sem hef­ur aðset­ur í Seattle, sagði í leiðara að bannið væri „Vand­ræðal­egt áfall fyr­ir fisk­eldi og mat­væla­ör­yggi í Banda­ríkj­un­um“. Tel­ur hann skamm­tíma­sýn hafa ráðið för og með ákvörðun­inni sé vegið að at­vinnu­grein sem gæti reynst sí­fellt mik­il­væg­ari á heimsvísu, bannið sé aðeins til þess fallið að stimpla vest­ur­strönd Banda­ríkj­anna út úr sam­keppn­inni og þróun á sviði fisk­eld­is.

mbl.is