Framleiddu 502 þúsund tonn af laxi

Samstæða Mowi framleiddi 502 þúsund tonn af laxi í fyrra.
Samstæða Mowi framleiddi 502 þúsund tonn af laxi í fyrra. Ljósmynd/Mowi

Sam­stæða lax­eld­isris­ans Mowi – sem fer meðal ann­ars með meiri­hluta hluta­fjár í Arctic Fish – setti fram­leiðslu­met á síðasta ári og náði að fram­leiða 502 þúsund tonn af laxi. Mowi held­ur þannig stöðu sinni sem lang­stærsti fram­leiðandi lax á heimsvísu.

Fram kem­ur í til­kynn­ingu Mowi til norsku kaup­hall­ar­inn­ar um fram­leiðslu fjórða árs­fjórðungs 2024 að um er að ræða 5,7% aukn­ingu frá 2023 þegar sam­stæðan fram­leiddi 475 þúsund tonn. Vert er að geta þess að 2023 voru á heimsvísu fram­leidd um 2.870 þúsund tonn af laxi sem merk­ir að sam­stæða Mowi var með rúm­lega 16% heims­fram­leiðslunn­ar það ár.

Inn­an sam­stæðunn­ar var á síðasta ári fram­leitt mest í Nor­egi, Síle og Skotlandi. Nam fram­leiðslan 304 þúsund tonn í Nor­egi, 73 þúsund tonn í Síle og 66 þúsund tonn í Skotlandi. Dótt­ur­fé­lagið Arctic Fish sem rek­ur eldi á Vest­fjörðum fram­leiddi 11 þúsund tonn.

130 millj­arða hagnaður

Rekstr­ar­hagnaður sam­stæðu Mowi fyr­ir skatta og fjár­magnsliði (e. operati­onal EBIT) var á fjórða árs­fjórðungi 226 millj­ón­ir evra sem er jafn­v­irði tæp­lega 33 millj­arða ís­lenskra króna. Með þessu er rekstr­ar­hagnaður­inn fyr­ir skatta og fjár­magnsliði fyr­ir allt árið 2024 kom­inn í 889 millj­ón­ir evra, eða tæp­lega 130 millj­arða ís­lenskra króna, miðað við upp­gjör þriðja árs­fjórðunga.

Taka ber þó fram að end­an­legt upp­gjör Mowi fyr­ir 2024 ligg­ur ekki fyr­ir og geta töl­urn­ar tekið breyt­ing­um.

Rekstr­ar­hagnaður án skatta og fjár­magnsliða á hvert fram­leitt kíló á fjórða árs­fjórðungi var hæst­ur í Nor­egi þar sem hann var 2,2 evr­ur og næst hæst­ur var hann í Skotlandi þar sem feng­ust 1,4 evr­ur úr hverju kílói. Hjá Arctic Fish var hann aðeins 0,75 evr­ur.

mbl.is