Laxey fjárfestir í búnaði frá Marel

Sindri Magnason hjá Marel og Kristmann Kristmannsson handsala samninginn.
Sindri Magnason hjá Marel og Kristmann Kristmannsson handsala samninginn. Ljósmynd/Laxey

Lax­ey og Mar­el hafa skrifað und­ir samn­ing um af­hend­ingu á Mar­el vinnslu- og hug­búnaði fyr­ir vænt­an­legt slát­ur­hús Lax­ey fyr­ir land­eld­islax. Lausn­in veit­ir bæði ná­kvæma stærðarflokk­un og teng­ingu við sta­f­ræn­ar lausn­ir Mar­el sem há­marka rekstr­ar­hag­kvæmni, að því er fram kem­ur í frétta­til­kynn­ingu frá Lax­ey.

Um er að ræða Smartline-flokk­ara og AXIN hug­búnað Mar­el. Með hug­búnaðinum get­ur starfs­fólk Lax­eyj­ar stýrt vinnslu­ferl­inu eft­ir upp­lýs­ing­um sem kerfið afl­ar í raun­tíma. Ger­ir hug­búnaður­inn starfs­fólk­inu þannig kleift að haga fram­leiðslunni á sem hag­kvæm­ast­an máta og jafn­framt að bregðast skjótt við vanda­mál­um sem kunna að koma upp. Þá er flokk­ar­inn sagður auka ná­kvæmni í stærðarflokk­un sem og styðja við rekj­an­leika, gæði og fram­leiðslu­hag­kvæmni

„Það skipt­ir okk­ur gríðarlega miklu máli að hafa skýra yf­ir­sýn yfir vinnsl­una, góðan rekj­an­leika og geta þannig tryggt hag­kvæmni í gegn­um öll stig vinnsl­unn­ar,” seg­ir Krist­mann Krist­manns­son verk­efna­stjóri vinnslu og inn­kaupa hjá Lax­ey í til­kynn­ing­unni.

Lax­ey stefn­ir að fram­leiðslu á 32 þúsund tonn­um af laxi á ári hverju í land­eld­is­stöð þeirra í Vest­manna­eyj­um. Þegar hef­ur verið byggð seiðastöð sem er kom­in í full­an rekst­ur og senn verður fyrsta áfanga áframeld­is­ins í Viðlaga­fjöru full­kláraður. Fyrsti seiðaskammt­ur var flutt­ur í áframeldið í lok síðasta árs og er fyrsta slátrun áætluð haustið 2025. J

mbl.is