Sigurður Arnar til liðs við Laxey

Sigurður Arnar Magnússon hefur verið ráðinn til starfa hjá Laxey.
Sigurður Arnar Magnússon hefur verið ráðinn til starfa hjá Laxey. Samsett mynd

Sig­urður Arn­ar Magnús­son hef­ur verið ráðinn í starf verk­efna­stjóra á fram­kvæmda­sviði hjá land­eld­is­fé­lag­inu Lax­ey í Vest­manna­eyj­um.

Fram kem­ur í til­kynn­ingu á Face­book-síðu Lax­eyj­ar að „Sig­urður Arn­ar, sem er upp­al­inn í Vest­manna­eyj­um, lauk ný­verið MS-gráðu í iðnaðar- og kerf­is­verk­fræði frá The Ohio State Uni­versity með áherslu á aðfanga­keðju­stjórn­un og fram­leiðslu­kerfi.“

Þá hafi hann  reynslu af verk­efna­stjórn­un, ferla­grein­ingu og hef­ur unnið að þróun sta­f­rænna lausna. „Með góða skipu­lags­hæfni og færni í teym­is­vinnu mun Sig­urður Arn­ar gegna mik­il­vægu hlut­verki í upp­bygg­ingu Lax­ey. Hann hef­ur einnig í gegn­um íþrótt­ir og störf sín öðlast dýr­mæta reynslu af for­ystu og sam­vinnu,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Sig­urður Arn­ar hef­ur störf hjá Lax­ey í næstu viku.

mbl.is