Rýna í rök lögreglustjórans

Sérfræðingar Matvælastofnunar skoða nú rök lögreglustjórans fyrir því að hætta …
Sérfræðingar Matvælastofnunar skoða nú rök lögreglustjórans fyrir því að hætta rannsókn á tildrögum þess að 3.500 laxar sluppu úr sjókví Arctic Fish árið 2023. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Mat­væla­stofn­un­ar rýn­ir nú í ákvörðun lög­reglu­stjór­ans á Vest­fjörðum um að fella niður saka­mál­a­rann­sókn í tengsl­um við að fjöldi laxa sluppu úr sjókví Arctic Fish í Pat­reks­frði árið 2023.

Greint var frá ákvörðun­inni í byrj­un vik­unn­ar og er það í annað sinn sem rann­sókn er hætt.

Stein Ove Tveiten for­stjóri Arctic Fish sagði að ákvörðunin hafi verið í takti við vænt­ing­ar fé­lags­ins þar um. „Þetta gef­ur okk­ur tæki­færi til að loka þess­um kafla og ein­beita okk­ur að áfram­hald­andi vinnu að sjálf­bærri laxa­fram­leiðslu,“ sagði for­stjór­inn.

Í fyr­ir­spurn til Mat­væla­stofn­un­ar var spurt hvort stofn­un­in geri at­huga­semd­ir við mat lög­reglu­stjór­ans að fella bæri niður rann­sókn­ina með til­liti til 145. grein laga um meðferð saka­mála, en hún fel­ur í sér að ekki skuli mæla með ákæru séu máls­gögn ekki nægi­leg eða lík­leg til þess að leiða til sak­fell­ing­ar.

„Sér­fræðing­ar Mat­væla­stofn­un­ar eru enn að fara yfir niður­stöðu lög­reglu­stjór­ans og rök hans fyr­ir því að fella rann­sókn­ina niður og því get­um við ekki tjáð okk­ur frek­ar um niður­stöðuna að svo stöddu,“ seg­ir Hrönn Ólína Jör­unds­dótt­ir for­stjóri Mat­væla­stofn­un­ar.

mbl.is