Allt landeldi í uppnámi

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 3:13
Loaded: 0.00%
Stream Type LIVE
Remaining Time 3:13
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
  • default, selected

„Það eru miklu fleiri fram­kvæmd­ir sem lenda í upp­námi við þenn­an úr­sk­urð […] það eru öll verk­efni þar sem menn eru að hrófla við vatni og það eru bara öll verk­efni sem snúa að land­eldi, brú­ar­gerð, all­ar vatns­afls­virkj­an­ir, all­ar jarðvarma­virkj­an­ir sem verið er að vinna að.“

Þannig lýs­ir Hörður Arn­ar­son for­stjóri Lands­virkj­un­ar þeirri stöðu sem upp er kom­in í kjöl­far þess að héraðsdóm­ur komst að þeirri niður­stöðu að ekk­ert stjórn­vald hefði heim­ild til þess að veita leyfi til breyt­inga á svo­kölluðum vatns­hlot­um en und­ir skil­grein­ingu þess fell­ur bæði yf­ir­borðs- og grunn­vatn.

Hörður er gest­ur Spurs­mála en viðtalið er aðgengi­legt á mbl.is. Þar seg­ir hann meðal ann­ars að þarna sé um að ræða land­eld­is­verk­efni upp á tugi millj­arða sem nú séu í upp­námi, ekki síst fjár­mögn­un­ar­ferli þeirra. 

Vongóður um að staðan skýrist

Þrátt fyr­ir þetta er hann vongóður um að staðan muni skýr­ast, annaðhvort með því að æðra dóm­stig snúi niður­stöðu héraðsdóms eða að lög­gjaf­inn eyði óviss­unni með nýrri lög­gjöf.

Sú lög­gjöf sem héraðsdóm­ur bygg­ir dóm sinn á er frá ár­inu 2011 en nú er deilt um hvort vilji lög­gjaf­ans hafi verið sá að girða fyr­ir öll ný verk­efni þar sem manns­hönd­in leiðir til breyt­inga á vatns­hlot­um.

Seg­ir Hörður aug­ljóst að það hafi aldrei verið ætl­un­in, enda hafi Alþingi síðar sýnt raun­veru­leg­an vilja sinn í verki, meðal ann­ars þegar hin um­rædda Hvamms­virkj­un var flutt úr biðflokki ramm­a­áætl­un­ar í nýt­ing­ar­flokk árið 2015.

Líkt og Morg­un­blaðið hef­ur fjallað ít­rekað um á síðustu miss­er­um stend­ur fyr­ir dyr­um gríðarleg fjár­fest­ing hjá land­eld­is­fyr­ir­tækj­um vítt og breitt um landið og er hún þegar allt er talið tal­in í hundruðum millj­arða.

Þrjú fyr­ir­tæki stefna á stór­fellda upp­bygg­ingu nærri Þor­láks­höfn, Sam­herji skammt frá Reykja­nes­virkj­un og nýj­ustu frétt­ir herma að fyr­ir­tækið Aur­ora fisk­eldi stefni einnig á mik­il um­svif á Grund­ar­tanga í Hval­f­irði.

Landeldisstöð Samherja Fiskeldis í Öxarfirði.
Land­eld­is­stöð Sam­herja Fisk­eld­is í Öxarf­irði. mbl.is
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: