Thor fær leyfi til fiskeldis

Matvælastofnun hefur gefið út leyfi fyrir eldi Thors landeldi ehf. …
Matvælastofnun hefur gefið út leyfi fyrir eldi Thors landeldi ehf. vestan Þorlákshafnar. mbl.is/Árni Sæberg

Mat­væla­stofn­un hef­ur veitt Thor land­eldi ehf. rekstr­ar­leyfi til fisk­eld­is á landi vest­an Þor­láks­hafn­ar, að því er fram kem­ur í til­kynn­ingu á vef stofn­un­ar­inn­ar. Veitt er leyfi fyr­ir 13.150 tonna há­marks­líf­massa vegna seiða- og mat­fisk­eld­is á laxi, bleikju og regn­bogasil­ungi.

Fram kem­ur að Thor land­eldi ehf. hafi sótt um rekstr­ar­leyfi fyr­ir 13.150 tonna há­marks­líf­massa mat­fisk­eldi þann 2. mars 2023.

Vak­in er at­hygli á að starf­sem­in er einnig háð starfs­leyfi Um­hverf­is­stofn­un­ar.

Eng­ar at­huga­semd­ir

fram kem­ur í grein­ar­gerð Mat­væla­stofn­un­ar að til­laga henn­ar að rekstr­ar­leyfi Thors var aug­lýst í byrj­un des­em­ber síðastliðnum og rann út frest­ur til að gera at­huga­semd­ir 3. janú­ar. Eng­ar at­huga­semd­ir bár­ust stofn­un­inni vegna til­lög­unn­ar.

Mat­væla­stofn­un óskaði eft­ir um­sögn­um Fiski­stofu, Haf­rann­sókna­stofn­un­ar og Sveit­ar­fé­lag­inu Ölfus þann 8. fe­brú­ar 2024. Aðeins barst um­sögn frá sveit­ar­fé­lag­inu sem gerði ekki at­huga­semd­ir við fyr­ir­hugaða út­gáfu rekstr­ar­leyf­is.

Þó seg­ir að „21. Fe­brú­ar 2024 barst tölvu­póst­ur frá Fiski­stofu þar fram kom að í viðhengi væri um­sögn stofn­un­ar­inn­ar. Viðhengið sem fylgdi var þó beiðni Mat­væla­stofn­un­ar um um­sögn en ekki um­sögn Fiski­stofu. Send­ur var tölvu­póst­ur þann 21. ág­úst á Fiski­stofu þar sem upp­lýst var um fram­an­greint og gef­inn frest­ur til að skila inn um­sögn til 2. sept­em­ber 2024. Eng­in um­sögn barst.“

mbl.is