854 milljóna rekstrartap hjá Arnarlaxi

Tap var á rekstri Arnarlax í fyrra.
Tap var á rekstri Arnarlax í fyrra. Ljósmynd/Arnarlax

Tap var á rekstri Arn­ar­lax (Icelandic Salmon) á síðasta ári nam það 5,8 millj­ón­um evra, u.þ.b. 854 millj­ón­ir ís­lenskra króna, án skatta og fjár­magnsliða (EBIT). Fé­lagið skilaði hins veg­ar rekstr­ar­hagnaði upp á 20,3 millj­ón­ir evra árið 2023.

Þetta má lesa úr árs­fjórðungs­upp­gjöri Arn­ar­lax sem kynnt var nú í morg­un.

Minni rekstr­ar­hagnað fé­lags­ins má rekja til mik­ils sam­drátt­ar í fram­leiðslu­magni sem kom til vegna líf­fræðilegra áskor­ana vet­ur­inn 2023/​2024.

Fé­lagið fram­leiddi 6,5 þúsund tonn af laxi a fjórða árs­fjórðungi síðasta árs sem er nokkuð minna en í sama árs­fjórðungi 2023 þegar fram­leidd voru 7,2 þúsund tonn. Þá námu rekstr­ar­tekj­ur 51,6 millj­ón­um evra í fjórðungn­um á móti 49,8 millj­ón­um í fyrra.

Hag­stæð verð á mörkuðum skiluðu fé­lag­inu 2 milj­ón­ir evra í rekstr­ar­hagnað án skatts og fjár­magnsliða (EBIT) eða 0,28 evr­ur á hvert fram­leitt kíló á fjórða árs­fjórðungi 2024. Það er veru­leg hækk­un frá sama árs­fjórðungi 2023 þegar rekstr­ar­hagnaður­inn var 1,4 millj­ón­ir evra og 0,22 evr­ur á hvert fram­leitt kíló.

Heild­ar­fram­leiðsla árs­ins 2024 var 11,8 þúsund tonn en var 17,9 þúsund tonn árið 2023. Þá voru rekstr­ar­tekj­ur síðasta árs 101,4 millj­ón­ir evra sem er rúm­lega 38% minni rekstr­ar­tekj­ur en árið 2023.

Gert er ráð fyr­ir að Arn­ar­lax fram­leiði 15 þúsund tonn á yf­ir­stand­andi ári. Jafn­framt er áfram unnið að því að tryggja leyfi til tíu þúsund tonna eldi í Ísa­fjarðar­djúpi.

mbl.is