Hagnaður af rekstri Arctic Fish jókst

Árið 2024 var ágætt hjá Arctic Fish.
Árið 2024 var ágætt hjá Arctic Fish. Ljósmynd/Arctic Fish

Rekstr­ar­tekj­ur Arctic Fish á síðasta árs­fjórðungi árs­ins 2024 voru 24,5 millj­ón­ir evra og hagnaður af rekstri að und­an­skild­um skött­um og fjár­magnsliðum var 2,12 millj­ón­ir evra, jafn­v­irði 3,6 millj­arða ís­lenskra króna og 311 millj­ón­um ís­lenskra króna.3 

Þetta má lesa úr upp­gjöri fé­lags­ins vegna fjórða árs­fjórðungs síðasta árs. Þar kem­ur fram að rekstr­ar­tekj­urn­ar í sama árs­fjórðungi voru 18,9 millj­ón­ir evra árið 2023 og rekstr­ar­hagnaður tæp­ar 4,2 millj­ón­ir. 

Þá var slátrað 3.456 tonn­um af laxi úr kví­um fé­lags­ins á síðustu þrem mánuðum síðasta árs sem er tæp­lega þúsund tonn­um meira en á sama tíma­bili árið á und­an. 

Stefnt að 15 þúsund tonn­um

Ef litið er til árs­ins 2024 í heild voru rekstr­ar­tekj­ur Arctic Fish 80,9 millj­ón­ir evra á móti 88,9 millj­ón­um árið á und­an. Rekstr­ar­hagnaður­inn jókst þó úr 14,4 millj­ón­um evra árið 2023 í 15,1 millljón árið 2024, jafn­v­irði 2,2 millj­arða ís­lenskra króna. 

Slátrað var 10.667 tonn­um af laxi á síðasta ári en 11.878 tonn­um árið 2023. Fé­lagið áætl­ar að fram­leiða um 15 þúsund tonn áár­inu 2025. 

mbl.is