Greiddu 1.471 milljón í eldisgjald

Fiskeldisfyrirtækin greiddu 1.471 milljón í sérstakt gjald á sjókvíaeldi á …
Fiskeldisfyrirtækin greiddu 1.471 milljón í sérstakt gjald á sjókvíaeldi á síðasta ári. mbl.is/Helgi Bjarnason

Inn­heimt­ar voru 1.471 millj­ón af fisk­eld­is­fyr­ir­tækj­um lands­ins á síðasta ári vegna sér­staks gjalds á fisk­eldi í sjó. Þetta upp­lýs­ir Fiski­stofa í svari við fyr­ir­spurn 200 mílna. 

Fisk­eldifyr­ir­tækið Kald­vík á Aust­fjörðum greiddi mest eða rúm­ar 578 millj­ón­ir króna. Á eft­ir fylg­ir Arn­ar­lax með tæp­lega 442 millj­ón­ir króna. 

Frá því að byrjað var að inn­heimta sér­stakt gjald af sjókvía­eldi 1. janú­ar 2020 hafa fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­in greitt tæp­ar 2.760 millj­ón­ir króna vegna inn­heimt­unn­ar, sem þýðir að ríf­lega 53% eld­is­gjalds frá upp­hafi hafi verið inn­heimt á síðastaári.

 

Hækk­un gjalda

Tvennt veld­ur þess­ari hækk­un, ann­ars veg­ar er það ár­leg hækk­un gjalds í sam­ræmi við upp­haf­leg ákvæði um inn­leiðingu gjalds­ins á sjö árum og svo hækk­un krónu­upp­hæðar til grund­vall­ar gjalds­ins hins veg­ar — ákvörðun þess efn­is var tek­in 2023.

Síðastliðin ára­mót hækkaði gjald á sjókvía­eldi um 19%. Fór gjald á lax úr 37,8 krón­um á kíló í 45,03 krón­ur og úr 18,9 krón­um á kíló fyr­ir regn­bogasil­ung í 22,52 krón­ur. Það má því gera ráð fyr­ir, verði fram­leiðsla á laxi eins í ár og í fyrra, að tekj­ur rík­is­sjóðs auk­ist veru­lega. Fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­in gera þó mörg ráð fyr­ir að fram­leiðsla auk­ist á þessu ári og gæti því farið svo að gjald á sjókvía­eldi nái að skila rík­is­sjóði tveim­ur millj­örðum króna.

Tölu­verður hluti tekna af gjald­tök­unni er ráðstafað til Fisk­eld­is­sjóðs sem hef­ur það hlut­verk að styrkja upp­bygg­ingu innviða þar sem fisk­eldi í sjókví­um er stundað og þar með sam­fé­lög og stoðir at­vinnu­lífs á þeim svæðum. 

Gjöld á sjókvía­eldi hafa hækkað um 2.300% frá því að þau voru fyrst inn­heimt. 

mbl.is