Laxey heldur áfram að fjárfesta

Samið Ragnar Ingi Kristjánsson, Kristmann Kristmannsson og Jóhann Bæring Gunnarsson.
Samið Ragnar Ingi Kristjánsson, Kristmann Kristmannsson og Jóhann Bæring Gunnarsson.

Eyja­menn og Ísfirðing­ar hafa ákveðið að leggj­ast sam­an á ár­arn­ar við fram­leiðslu á eld­islaxi í þeim skiln­ingi að Lax­ey og Ístækni hafa gert með sér sam­starfs­samn­ing, að því er seg­ir í Morg­un­blaðinu í dag.

For­ráðamenn fyr­ir­tækj­anna und­ir­rituðu í vik­unni samn­ing um af­hend­ingu á vinnslu­búnaði fyr­ir slát­ur­hús Lax­eyj­ar í gæðafram­leiðslu á land­eld­islaxi.

Lax­ey rek­ur land­eldi í Vest­manna­eyj­um og þar er slát­ur­hús í und­ir­bún­ingi. Ístækni er ný­legt fyr­ir­tæki á Ísaf­irði en eig­end­ur fyr­ir­tæk­is­ins keyptu vél­ar og búnað sem bauðst eft­ir að Skag­inn 3X hætti starf­semi á Ísaf­irði. Áður var til fyr­ir­tækið 3X-Stál ehf. á Ísaf­irði og vakti tals­verða at­hygli um tíma. Fékk til að mynda út­flutn­ings­verðlaun for­seta­embætt­is­ins. „Samn­ing­ur­inn nær yfir af­hend­ingu og upp­setn­ingu alls vinnslu­búnaðar, allt frá slátrun að flokk­un­ar­línu. Tæk­in sam­an­standa af blæði-/​kælitanki, hands­læg­ing­ar­línu, auk þvotta­kerf­is fyr­ir sjálf­virk þrif búnaðar­ins,“ seg­ir í frétta­til­kynn­ingu vegna samn­ings­ins.

Lax­ey stefn­ir að fram­leiðslu á 32 þúsund tonn­um af laxi úr land­eldi sam­kvæmt því sem fram kem­ur á vef fyr­ir­tæk­is­ins. Í síðasta mánuði var greint frá því að fyr­ir­tækið hefði gert samn­ing við Mar­el um vinnslu- og hug­búnað.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: