Kosningu til varaformanns lokið

Þau Diljá Mist og Jens Garðar sækjast bæði eftir embættinu.
Þau Diljá Mist og Jens Garðar sækjast bæði eftir embættinu. Samsett mynd

Kosn­ingu um nýj­an vara­formann á lands­fundi Sjálf­stæðis­flokks­ins í Laug­ar­dals­höll er nú lokið og stend­ur taln­ing at­kvæða yfir.

Þau Diljá Mist Ein­ars­dótt­ir og Jens Garðar Helga­son gefa bæði kost á sér í það embætti.

Fyr­ir ligg­ur að Guðrún Haf­steins­dótt­ir er nýr formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins en úr­slit í kjöri til for­manns voru kynnt fyr­ir skömmu. 

Alls greiddu 1.862 at­kvæði á fund­in­um en fjög­ur at­kvæði voru ógild. Aðeins 19 at­kvæði skildu þær Guðrúnu og Áslaugu að. 

mbl.is