Frumkvöðull með smitandi áhuga

Að störfum á rannsóknarstofunni. Þórunn Þórðardóttir leiðbeinir ungri rannsóknarkonu, Sigurborgu …
Að störfum á rannsóknarstofunni. Þórunn Þórðardóttir leiðbeinir ungri rannsóknarkonu, Sigurborgu Kristmannsdóttur líffræðingi, á þessari ódagsettu mynd. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun

Þór­unn Þórðardótt­ir var ekki bara öfl­ug­ur vís­indamaður held­ur bjó hún yfir sterk­um per­sónu­leika og lét sér annt um sam­starfs­fólk sitt og nem­end­ur. Það var því vel til fundið að nýja haf­rann­sókna­skipið fengi nafn í höfuðið á Þór­unni Þórðardótt­ur sjáv­ar­líf­fræðingi.

Þetta seg­ir í grein sem birt­ist fyrst í sér­blaði um nýtt haf­rann­sókna­skip Íslend­inga sem fylgdi Morg­un­blaðinu 8. mars síðastliðinn. Skipið var form­lega af­hent stofn­un­inni 12. mars.

Þór­unn átti merki­legt lífs­hlaup og varð hún fyrst ís­lenskra kvenna til að læra haf­rann­sókn­ir, en hjá Haf­rann­sókna­stofn­un­inni vann hún sem sér­fræðing­ur á sviði svifþör­unga og þótti frum­kvöðull á sínu fræðasviði.

Saga Þór­unn­ar hófst 15. maí 1925 á Ein­ars­stöðum á Grímsstaðaholti í Reykja­vík, skammt frá þeim stað þar sem raun­vís­inda­deild­ir Há­skóla Íslands eru í dag með bygg­ing­ar sín­ar. Þór­unn ólst upp í Reykja­vík og stundaði nám við Mennta­skól­ann í Reykja­vík á stríðsár­un­um. Þaðan út­skrifaðist hún 1944 og fór í fram­hald­inu til Lund­ar­há­skóla í Svíþjóð og Blindren í Ósló. Árið 1955 lauk Þór­unn mag.scient.-gráðu í Ósló sem sjáv­ar­líf­fræðing­ur með svifþör­unga sem sér­grein, og ári síðar var hún kom­in til starfa hjá Haf­rann­sókna­stofn­un, sem þá hét At­vinnu­deild Há­skóla Íslands – fiski­deild.

Af lýsingum kollega hennar að dæma var Þórunn í essinu …
Af lýs­ing­um koll­ega henn­ar að dæma var Þór­unn í ess­inu sínu úti á sjó og lét öldu­gang­inn ekki trufla sig.

Fræðakona í karla­veldi

Á degi kvenna í vís­ind­um 2021 birti Haf­rann­sókna­stofn­un ít­ar­lega grein um fer­il Þór­unn­ar og kem­ur þar m.a. fram að hún „þurfti oft­ar en ekki á allri sinni þol­in­mæði og umb­urðarlyndi að halda til þess að standa á sínu í því karla­veldi sem þá ríkti á þessu fræðasviði“. All­an sinn starfs­ald­ur vann Þór­unn við sitt sér­svið, lengst af sem deild­ar­stjóri á þör­unga­deild.

Eitt helsta vís­inda­afrek Þór­unn­ar sneri að rann­sókn­um og mati á heild­ar-frum­fram­leiðni svifþör­unga á miðunum um­hverf­is Ísland, en það eru þess­ir svifþör­ung­ar sem mynda und­ir­stöðuna í fæðukeðju hafs­ins og þar með und­ir­stöðu ís­lensks sjáv­ar­út­vegs. Þór­unn var t.d. með fyrstu sjáv­ar­líf­fræðing­um til að nota svo­kallaða geislakolsaðferð til að meta fram­leiðni í sjón­um en Þór­unn aðlagaði þá mæliaðferð ís­lensk­um aðstæðum og eru mæl­ing­ar henn­ar í fullu gildi enn þann dag í dag.

Þórunn og Jón Ólafsson haffræðingur á spjalli. Með þeim sitja …
Þór­unn og Jón Ólafs­son haffræðing­ur á spjalli. Með þeim sitja Björn Erl­ings­son hafeðlis­fræðing­ur og Haf­steinn G. Guðfinns­son svifþör­unga­fræðing­ur. Mynd­in er tek­in um borð í Bjarna Sæ­munds­syni í vist­fræðirann­sókn­ar­leiðangri.

Eft­ir Þór­unni liggja fjöl­marg­ar grein­ar um svifgróður­inn í haf­inu sem birt­ust bæði í ís­lensk­um og er­lend­um rit­um.

Í grein­inni á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar seg­ir enn frem­ur að Þór­unn hafi verið afar vand­virk vís­inda­kona og haft góða yf­ir­sýn yfir sitt fræðasvið. „Hún var virk í alþjóðlegu starfi og skildi bet­ur en flest­ir aðrir þörf­ina á að efla þekk­ingu á und­ir­stöðum lífs­ins í sjón­um. Hún var vak­in og sof­in yfir rann­sókn­un­um og þegar hún fór heim eft­ir lang­an vinnu­dag á stofn­un­inni tók hún oft­ar en ekki með sér bunka af gögn­um og fræðigrein­um til að líta í á kvöld­in.“

Þórunn sökkti sér ofan í störf sín og átti það …
Þór­unn sökkti sér ofan í störf sín og átti það oft til að taka stafla af gögn­um og fræðigrein­um heim með sér til að skoða bet­ur að vinnu­deg­in­um lokn­um.

Smitaði aðra af áhuga á líf­ríki sjáv­ar

Þór­unni var líka lagið að kveikja áhuga fólks á haf­rann­sókn­um og seg­ir í grein Haf­rann­sókna­stofn­un­ar að ástríða henn­ar hafi verið smit­andi og haft já­kvæð áhrif bæði á sam­starfs­fólk henn­ar og nem­end­ur. Þótti Þór­unn mjög skemmti­leg­ur fé­lagi og góður kenn­ari, og fór ekki á milli mála að hún bar mikla um­hyggju fyr­ir sam­starfs­fólki sínu. Hún þótti ekki bara góður vís­indamaður held­ur líka búa yfir sterk­um per­sónu­leika og mik­illi rétt­lætis­kennd.

Þór­unn var sam­ferða Haf­rann­sókna­stofn­un í gegn­um lyk­il­tíma­bil í sögu stofn­un­ar­inn­ar, en þegar hún kom þar fyrst til starfa bjó Hafró við þröng­an húsa­kost en til að gera rann­sókn­ir þurftu starfs­menn stofn­un­ar­inn­ar að fá að láni varðskipið Maríu Júlíu þegar tæki­færi gafst og þótti það ekki lít­il áskor­un að fara í sýna­töku­ferðir á því skipi. Átti Þór­unn stór­an þátt í að efla stofn­un­ina m.a. með því að laða til sín ungt fólk sem hún leiðbeindi í námi.

Lýðveld­is­sjóður Alþing­is veitti Þór­unni heiður­sviður­kenn­ingu 17. júní 1997 fyr­ir fram­lag henn­ar til rann­sókna í haf­inu við Ísland.

Þór­unn lést á hjarta­deild Land­spít­al­ans við Hring­braut í des­em­ber 2007.

Þórunn var m.a. í hópi fyrstu sjávarlíffræðinga til að nota …
Þór­unn var m.a. í hópi fyrstu sjáv­ar­líf­fræðinga til að nota svo­kallaða geislakolsaðferð til að meta fram­leiðni í sjón­um.
Því er ekki hægt að neita að Þórunn Þórðardóttir HF …
Því er ekki hægt að neita að Þór­unn Þórðardótt­ir HF 300 er af­skap­lega glæsi­legt skip. Búnaður­inn um borð ætti að auðvelda vís­inda­fólk­inu störf sín og leiða til enn ná­kvæm­ari mæl­inga en áður. Ljós­mynd/​Armon

„Setjið mig í röðina á eft­ir hon­um“

Til eru ófá­ar sög­ur sem lýsa vel per­sónu­leika Þór­unn­ar Þórðardótt­ur og fer ekki á milli mála að hún hafði bein í nef­inu.

Ein sag­an seg­ir frá því þegar Þór­unn kem­ur fyrst til starfa hjá for­vera Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, og voru all­ir aðrir sér­fræðing­ar stofn­un­ar­inn­ar karl­ar. Tvær kon­ur störfuðu hjá stofn­un­inni og önnuðust þær rit­ara­störf og síma­vörslu og höfðu einnig það hlut­verk að tryggja að alltaf væri kaffi á könn­unni.

Fyrsta dag Þór­unn­ar á nýj­um vinnustað gefa kon­urn­ar tvær sig á tal við hana, bjóða Þór­unni vel­komna og út­skýra fyr­ir henni hvað þær fá­ist við. Þær segj­ast skipt­ast á um að sjá um kaffið, og spyrja Þór­unni hvort hún vilji ekki vera með þeim í því.

Eft­ir að hafa hugsað sig stutt­lega um svaraði Þór­unn. „Al­veg sjálfsagt, setjið mig í röðina á eft­ir hon­um,“ sagði hún og nefndi einn karl­kyns koll­ega sinna.

Þórunn og Ingvar Hallgrímsson unnu bæði að svifrannsóknum í hafinu, …
Þór­unn og Ingvar Hall­gríms­son unnu bæði að svif­rann­sókn­um í haf­inu, hún í svifþör­ung­um en hann í dýra­svifi.
Þessi mynd hefur verið tekin við eitthvert ánægjulegt tilefni enda …
Þessi mynd hef­ur verið tek­in við eitt­hvert ánægju­legt til­efni enda hef­ur verið boðið upp á veit­ing­ar og drykki. Þór­unn Þórðardótt­ir stend­ur fremst hægra meg­in og á bak við hana Edda Guðna­dótt­ir rann­sókn­ar­maður og Elís Heiðar Ragn­ars­son mat­sveinn, lengst af á rann­sókna­skip­inu Dröfn. Fremst vinstra meg­in á mynd­inni eru Jón Jóns­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, og bak við hann Ólaf­ur Ástþórs­son, fyrr­ver­andi aðstoðarfor­stjóri Hafró, og Guðmund­ur Guðmunds­son út­gerðar­stjóri rann­sókna­skip­anna.



Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: