Fyrsta marsralli Þórunnar lokið

Rannsóknafólk Hafrannsóknastofnunar um borð í Þórunni Þórðardóttur en alls tóku …
Rannsóknafólk Hafrannsóknastofnunar um borð í Þórunni Þórðardóttur en alls tóku 32 rannsóknamenn og um 70 áhafnarmeðlimir á fjórum skipum þátt í marsralli ársins. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun

Þór­unn Þórðardótt­ir HF 300, nýtt rann­sókna­skip Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, lauk síðun fyrsta rann­sókn­ar­leiðangri síðastliðinn sunnu­dag er hún kom til hafn­ar í Hafnar­f­irði. Með því lauk svo­kölluðu marsralli sem er stofn­mæl­ing botn­fiska á Íslands­miðum.

Auk Þór­unni tóku þátt rnna­ókn­ar­skipið Árni Friðriks­son og tog­ar­arn­ir Breki og Þór­unn Sveins­dótt­ir. Í skip­un­um fjór­um voru 32 rann­sókn­ar­menn og um 70 áhafn­ar­meðlim­ir. Togað var á 580 stöðvum um­hverf­is landið á 20 til 500 metra dýpi, að því er fram kem­ur í færslu á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar.

Fram kem­ur að Þór­unn Þórðardótt­ir tók stöðvar út af Vest­fjörðum og fyr­ir norðan land. „Það fór vel um alla í leiðangr­in­um en aðstaða um borð er góð. Rými til mæl­inga, bæði á milli­dekk­inu og í rann­sókna­stofu, er gott og hentaði mjög vel fyr­ir mæl­ing­arn­ar sem fóru fram.“

Þá seg­ir að verk­efnið sé „mjög viðfangs­mikið og eitt af stærstu verk­efn­um Haf­rann­sókna­stofn­un­ar. Gögn­um sem safnað er gegna lyk­il­hlut­verki í stofn­mati og veiðiráðgjöf fyr­ir flest­ar ís­lensk­ar botn­fisk­teg­und­ir. Gögn­in eru einnig mik­il­væg fyr­ir ým­is­kon­ar vist­fræðirann­sókn­ir. Í verk­efn­inu er gögn­um safnað um fiska sem flokk­ast ekki sem nytja­teg­und­ir og eru þau notuð til að skoða breyt­ing­ar í teg­unda­fjöl­breyti­leika, m.a. með til­liti til breyt­inga í hita­stigi sjáv­ar,“ seg­ir í færsl­unni.

Þórunn Þórðardóttir HF er sögð hafa reyns vel í fyrsta …
Þór­unn Þórðardótt­ir HF er sögð hafa reyns vel í fyrsta leiðangri sín­um. Ljós­mynd/​Haf­rann­sókna­stofn­un

Greint er frá því að rýnt hef­ur verið í inni­hald maga þorsks í fjölda­mörg ár til að leggja mat á breyti­leika í fæðu eft­ir svæðum og árum og var það einnig gert að þessu sinni.

„Í leiðangr­in­um er einnig safnað sýn­um vegna ým­issa ann­ara rann­sókna, t.d. á meng­un­ar­efn­um í sjáv­ar­fangi og mat lagt á magn rusls á sjáv­ar­botni. Auk þess var botn­dýr­um sem fást sem meðafli safnað á nokkr­um stöðvum um borð í Þór­unni Þórðardótt­ur til að fylgj­ast með líf­massa, fjöl­breyti­leika og út­breiðslu botn­dýra við Ísland.“

mbl.is