Skortir fjármagn til uppbyggingar eldis

Jens Þórðarson framkvæmdastjóri GeoSalmo segir enn nokkuð í land með …
Jens Þórðarson framkvæmdastjóri GeoSalmo segir enn nokkuð í land með fjármörgnun byggingu eldisstöð félagsins vestur af Þorlákshöfn. mbl.is/Arnþór Birkisson

Ekki hef­ur gengið jafn vel að tryggja fjár­mögn­un upp­bygg­ing­ar eld­is­stöðvar GeoSalmo vest­ur af Þor­láks­höfn eins og von­ir voru bundn­ar við og hef­ur því hægst á fram­kvæmd­um. Þetta upp­lýs­ir Jens Þórðar­son fram­kvæmda­stjóri fé­lags­ins í sam­tali við Morg­un­blaðið.

„Við erum að byggja seiðastöðina okk­ar á Laug­um í Landsveit en höf­um hægt á fram­kvæmd­um í Þor­láks­höfn. Við erum í fjár­mögn­un­ar­ferli sem tek­ur lengri tíma en við höfðum upp­haf­lega áætlað. Allt annað er klárt – öll hönn­un, öll leyfi og meira eða minna öll aðföng. Nú leit­um við bara sam­starfsaðila sem er til­bú­inn að koma til liðs við okk­ur með það sem vant­ar upp á,“ seg­ir hann.

Spurður hversu mikið fjár­magn vanti upp á til að geta hafið fram­kvæmd­ir á ný svar­ar Jens að það sé stór hluti þess sem þarf til að geta lokið við smíði stöðvar­inn­ar.

„Óvissa á alþjóðamörkuðum hef­ur áhrif þetta ferli að minnsta kosti til skemmri tíma, en verk­efnið hef­ur fengið góðar und­ir­tekt­ir. Sam­töl­in eru góð og þétt­ur hóp­ur er að mynd­ast. Þetta er ekki spurn­ing um hvort þetta ger­ist held­ur hvernig og hvenær.“

Leyfi í höfn

Mat­væla­stofn­un til­kynnti í byrj­un vik­unn­ar að stofn­un­in hefði lokið við út­gáfu rekstr­ar­leyf­is til fisk­eld­is á landi. Leyfið veit­ir heim­ild til 12.160 tonna líf­massa vegna seiða- og mat­fisk­seld­is á laxi vest­ur af Þor­láks­höfn.

„Þetta er nokkuð sem við höf­um unnið að í þrjú ár og síðasta púslið sem vantaði til þess að all­ar for­send­ur væru komn­ar. Það er frá­bært að ná þess­um áfanga,“ seg­ir Jens.

Íslenska fyrirtækið GeoSalmo áformar að reisa allt að 24.000 tonna …
Íslenska fyr­ir­tækið GeoSalmo áform­ar að reisa allt að 24.000 tonna lax­eld­is­stöð vest­an við Þor­láks­höfn. Lands­skipu­lag
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: