Fyrirtækið Laxey hf. hyggst stækka landeldisstöð sína fyrir lax við Viðlagafjöru í Vestmannaeyjum og sækja um leyfi fyrir allt að 42 þúsund tonna eldi á ári.
Laxey er einnig með áform um að reisa aðra seiðaeldisstöð fyrirtækisins á athafnasvæði vestan við Viðlagafjöru þar sem hámarkslífmassi yrði allt að 300 tonn. Núverandi eldisleyfi heimilar hámarkslífmassa laxfiska upp í allt að 7.000 tonn á ári en eftir stækkun yrði hámarkslífmassi í stöðinni allt að 22.000 tonn.
Nánari umfjöllun má finna í Morgunblaðinu í dag. Einnig má nálgast hana án endurgjalds í Mogganum, nýju appi Morgunblaðsins og mbl.is.