Rannsókn á ólöglegu fiskeldi miðar vel

Um er að ræða annað mál á stuttum tíma þar …
Um er að ræða annað mál á stuttum tíma þar sem fiskeldi veiðifélags er til skoðunar. mbl.is/Árni Sæberg

Rann­sókn Mat­væla­stofn­un­ar (MAST) vegna meints ólög­legs fisk­eld­is veiðifé­lags á Suður­landi er langt á veg kom­in, að sögn Karls Stein­ar Óskars­son­ar, deild­ar­stjóra fisk­eld­is hjá stofn­un­inni. MAST greindi frá því í síðustu viku að fisk­eldi á Suður­landi væri til skoðunar því að í ljós hefði komið, í kjöl­far ábend­ing­ar, að það hefði hvorki starfs- né rekstr­ar­leyfi.

MAST lagði fyrr í mánuðinum þriggja m.kr. stjórn­valds­sekt á annað veiðifé­lag, Veiðifé­lag Eystri-Rangár. Karl Stein­ar seg­ir mál­in þó ekki sam­bæri­leg og því sé ekki von á álagn­ingu stjórn­valds­sekt­ar á það veiðifé­lag sem nú er til rann­sókn­ar hjá MAST.

„Það er ekki hægt að leggja á stjórn­valds­sekt fyr­ir það að vera með ólög­legt fisk­eldi. Það er hægt að leggja á slíka sekt ef þú flyt­ur seiði í stöð sem er ekki með leyfi. Lög­in taka ekki vel á þessu að okk­ar mati,“ sagði Karl Stein­ar í sam­tali við blaðið. Í máli Veiðifé­lags Eystri-Rangár sem lauk með álagn­ingu stjórn­valds­sekt­ar voru seiði flutt frá seiðastöð sem var með leyfi í aðra seiðastöð sem ekki var með leyfi.

Karl Stein­ar seg­ist ekki telja að brot­um af þessu tagi fari fjölg­andi. Hann tel­ur að veiðifé­lagið sem nú sé til rann­sókn­ar hafi framið meint brot af gá­leysi, fé­lagið hafi ekki vitað að sækja þyrfti um leyfi frá MAST og Um­hverf­is- og orku­stofn­un til að vera með fisk­eldi. Í máli Veiðifé­lags Eystri-Rangár vissu þeir sem fluttu seiðin bet­ur, að sögn Karls Stein­ars.

Lög­um sam­kvæmt ber að loka stöðinni þar sem meint brot áttu sér stað í því máli sem nú er til rann­sókn­ar. Fiski­stofa fer með eft­ir­lit með því hvort seiðum sé sleppt úr ólög­legu fisk­eldi í ár á Íslandi. MAST hef­ur gert Fiski­stofu viðvart um málið sem nú er til rann­sókn­ar.

Guðni Magnús Ei­ríks­son, sviðsstjóri lax- og sil­ungsveiðisviðs hjá Fiski­stofu, seg­ir ekki heim­ilt að sleppa seiðum úr fisk­eldi í á nema fyr­ir liggi fisk­rækt­un­ar­áætl­un sem sé skoðuð af fiski­fræðing­um og svo í kjöl­farið staðfest af Fiski­stofu.

Ef veiðifé­lag slepp­ir seiðum í á eða fer í aðrar fisk­rækt­un­araðgerðir án þess að fisk­rækt­un­ar­áætl­un liggi fyr­ir bein­ir Fiski­stofa þeim til­mæl­um til veiðifé­laga að setja sér áætl­un. Fiski­stofa hef­ur ekki gripið til þess að kæra slík brot til lög­reglu ef fisk­rækt­un­ar­áætl­un er lögð fram síðar eða fisk­eld­inu er hætt, að sögn Guðna.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: