Nýtt hátæknivopn gegn erfðablöndun

Myndgreiningarkerfi Aquabyte vaktar kynþroska í fiskum í eldiskvíum og hefur …
Myndgreiningarkerfi Aquabyte vaktar kynþroska í fiskum í eldiskvíum og hefur kerfið verið samþykkt til notkunar hér á landi. Mynd/Aquabyte

Mat­væla­stofn­un hef­ur heim­ilað notk­un á mynd­grein­ing­araðferð norska fyr­ir­tæk­is­ins Aqua­byte við skrán­ingu og vökt­un á kynþroska eld­islaxa í sjókví­um á Íslandi. Fyr­ir­tækið full­yrðir að lausn­in sé hin fyrsta sinn­ar teg­und­ar á heimsvísu.

Eft­ir ít­ar­legt þró­un­ar- og lög­gild­ing­ar­ferli í sam­vinnu við Arctic Fish í slát­ur­húsi fyr­ir­tæk­is­ins í Bol­ung­ar­vík hef­ur Mat­væla­stofn­un samþykkt sjálf­virka aðferð Aqua­byte til að meta stöðu kynþroska í eld­islaxi, seg­ir í frétta­til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu.

„Þessi áfangi er stórt skref í sta­f­ræn­um umbreyt­ing­um fisk­eld­is og vökt­un á vel­ferð fiska. Hann sýn­ir hvernig eft­ir­litsaðilar, at­vinnu­grein­in og tæknifyr­ir­tæki geta unnið sam­an að raun­veru­leg­um um­bót­um,“ seg­ir Per Erik Han­sen, reglu- og sam­skipta­stjóri hjá Aqua­byte, í til­kynn­ing­unni.

Talið er að notk­un kerf­is­ins hafi í för með sér veru­leg­ar um­bæt­ur í dýra­vel­ferð í fisk­eldi, þar sem ekki þarf að kryfja 200 laxa á hverju eld­is­svæði. Í stað þess geta ís­lensk fisk­eld­is­fyr­ir­tæki safnað upp­lýs­ing­um og skilað til op­in­berra eft­ir­litsaðila án þess að valda fisk­um streitu eða hrein­lega drepa þá.

Ávinn­ing­ur fyr­ir vel­ferð

Íslensk yf­ir­völd gera þá kröfu að fisk­eld­is­fyr­ir­tæki vakti kynþroska fiska í kví­um sín­um sem lið í bar­átt­unni gegn erfðablönd­un og þar með vernd­un villtra stofna. Hingað til hef­ur þetta kraf­ist þess að tek­in séu reglu­lega sýni, sem fram­kvæmt er með því að skoða fisk­ana og hef­ur skrán­ing farið fram hand­virkt. Það er liðin tíð ef marka má full­yrðing­ar Aqua­byte um lausn sína.

Kerfi fyr­ir­tæk­is­ins styðst við öfl­ug­ar mynda­vél­ar og skynj­ara með sjálf­hreins­andi lins­um sem mynda fisk­ana, en grein­ing mynd­efn­is er unn­in af gervi­greind og er upp­lýs­ing­um skilað í staðlað skýrslu­gerðar­kerfi Aqua­byte. Þannig er hægt að fylgj­ast með þróun fisk­anna í kví­un­um og sinna skrán­ingu án þess að valda fiski mögu­leg­um skaða sem fylg­ir því að vera tek­inn úr kví til skoðunar.

„Með þessu nýja tæki þurfa fisk­eld­is­fyr­ir­tæki ekki leng­ur að kryfja 200 fiska á hverju eld­is­svæði til að meta kynþroska­stig laxa. Ferlið er nú al­farið mynd­grein­ing­armiðað og ger­ir fyr­ir­tækj­un­um kleift að upp­fylla laga­kröf­ur án þess að skaða fisk eða valda hon­um streitu. Þetta er ávinn­ing­ur fyr­ir vel­ferð fiska og ger­ir rekstr­araðilum auðveld­ara með að koma í veg fyr­ir kynþroska eld­islaxa í sjókví­um, sem er mik­il­vægt mark­mið,“ seg­ir Karl Stein­ar Óskars­son, deild­ar­stjóri fisk­eld­is­deild­ar hjá Mat­væla­stofn­un.

Betri gögn

Fram kem­ur að norska fyr­ir­tækið hafi unnið náið með Arctic Fish á Vest­fjörðum við próf­an­ir og þróun lausn­ar­inn­ar í slát­ur­hús­inu á Bol­ung­ar­vík. Sam­starfið hafi leitt til þess að hægt hafi verið að sýna ís­lensk­um eft­ir­litsaðilum að tækn­in stand­ist ís­lensk­ar kröf­ur um vökt­un.

John Gunn­ar Grindsk­ar, fram­kvæmda­stjóri eld­is hjá Arctic Fish, seg­ir próf­an­ir búnaðar­ins hafa gefi já­kvæðar niður­stöður og að staðfest­ing­ar­ferl­ar gangi vel. Þá tel­ur hann um mik­il­vægt fram­fara­skref að ræða. „Þessi nýja aðferð við sjálf­virkt mat á kynþroska veit­ir dýpri inn­sýn á þann hátt sem gagn­ast öll­um – fisk­eld­inu, eft­ir­litsaðilum og fisk­un­um sjálf­um. Þetta snýst um að nota betri gögn til að taka betri ákv­arðanir.“

„Við erum mjög þakk­lát Arctic Fish fyr­ir stuðning þess og vilja til að gera þetta mögu­legt. Fram­lag fyr­ir­tæk­is­ins í gegn­um allt ferlið, bæði með aðgangi og dýr­mæt­um at­huga­semd­um, hafði lyk­i­lá­hrif á að ná þess­um mik­il­væga áfanga,“ seg­ir Kamilla Svind­seth, sölu­stjóri Aqua­byte á Íslandi.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: