#77. - Ár í kosningar: Baráttan er byrjuð

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 1:57:43
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 1:57:43
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
  • default, selected

Í dag er slétt ár þar til Íslend­ing­ar ganga að kjör­borðinu og kjósa til 62 sveit­ar­stjórna. Víða stefn­ir í harðan slag og ljóst að marg­ir þurfa að verja vígið og enn aðrir sem stefna á að ná völd­um.

Þetta er meðal þess sem farið er yfir á vett­vangi Spurs­mála þenn­an föstu­dag­inn þegar blaðamenn­irn­ir Andrés Magnús­son og Her­mann Nökkvi Gunn­ars­son mæta til leiks og fara yfir kosn­inga­bar­átt­una framund­an. Það má segja að Spurs­mál ræsi kapp­hlaupið um meiri­hlut­ann í sveit­ar­fé­lög­un­um landið um kring.

Þátt­ur­inn var sýnd­ur hér á mbl.is fyrr í dag en upp­töku af hon­um má nálg­ast í meðfylgj­andi mynd­bands­spil­ara, á Spotify og/​eða YouTu­be og er hún öll­um aðgengi­leg.

Verðlag hækk­ar og hvað með kjara­samn­ing­ana?

Halla Gunn­ars­dótt­ir, sem kjör­in var formaður VR, stærsta stétt­ar­fé­lags lands­ins í vor, mæt­ir á vett­vang og fer meðal ann­ars yfir þær áhyggj­ur sem nú hrann­ast upp vegna hækk­andi verðlags. Hún verður spurð að því hvort hætt sé við að risa­samn­ing­arn­ir sem und­ir­ritaðir voru í fyrra, með mikl­um kostnaði fyr­ir rík­is­sjóð og fyr­ir­tæk­in í land­inu, sé í hættu en í sept­em­ber næst­kom­andi fer sér­stök for­sendu­nefnd yfir það hvort ákvæði samn­ings­ins haldi.

Rétt­indi borg­ar­anna fyr­ir borð bor­in?

Frosti Loga­son mæt­ir ásamt Höllu en hann birti í vik­unni kynn­gi­magnað viðtal við Jón Óttar Ólafs­son, sem verið hef­ur milli tann­anna á fólki síðustu vik­ur vegna njósna­fyr­ir­tæk­is­ins PPP. Frosti hef­ur sterk­ar skoðanir á störf­um sér­staks sak­sókn­ara og það verður fróðlegt að heyra hvað hann hef­ur að segja um næstu skref sem taka verður til þess að leiða þetta stóra mál til lykta.

Lækk­ar Seðlabank­inn vexti eður ei?

Sér­fræðing­ar Íslands­banka, sem loks verður einka­vædd­ur að fullu í næstu viku, telja að pen­inga­stefnu­nefnd Seðlabanka Íslands muni halda stýri­vöxt­um óbreytt­um að sinni en nefnd­in kynn­ir niður­stöðu maraþon­funda sinna á miðviku­dags­morg­un í næstu viku. Meg­in­vext­ir bank­ans eru 7,75% og þykir flest­um nóg um - ekki síst verka­lýðshreyf­ing­unni.

Jón Bjarki Bents­son, aðal­hag­fræðing­ur Íslands­banka fer yfir þetta mat og hvernig horf­urn­ar í hag­kerf­inu eru al­mennt. Það ger­ir hann ásamt Marinó Erni Tryggva­syni, fyrr­ver­andi for­stjóra Kviku banka. Hann von­ast til þess að Seðlabank­inn stígi var­færið skref í átt til vaxta­lækk­un­ar. Þar horf­ir hann til fjár­mála­stöðug­leika sem taka verði til­lit til, 12-24 mánuði fram í tím­ann.

Sneisa­full­ur þátt­ur af áhuga­verðri umræðu um lands­ins gagn og nauðsynj­ar. Fylgstu með Spurs­mál­um hér á mbl.is alla föstu­daga klukk­an 14.

Andrés Magnússon, Hermann Nökkvi Gunnarsson, Jón Bjarki Bentsson, Marinó Örn …
Andrés Magnús­son, Her­mann Nökkvi Gunn­ars­son, Jón Bjarki Bents­son, Marinó Örn Tryggva­son, Frosti Loga­son og Halla Gunn­ars­dótt­ir eru gest­ir í nýj­asta þætti Spurs­mála. Sam­sett mynd/​mbl.is/​María Matth­ías­dótt­ir
mbl.is