#78. - Kallar eftir afsögn ríkislögreglustjóra

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Úlfar Lúðvíks­son, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóri á Suður­nesj­um, tek­ur enga fanga í ít­ar­legu viðtali í Spurs­mál­um. Seg­ir hann rík­is­lög­reglu­stjóra og ráðuneyt­is­stjóra dóms­málaráðuneyt­is­ins hafa brugðist skyld­um sín­um þegar kem­ur að vernd landa­mæra rík­is­ins.

    Í þætt­in­um fer Úlfar yfir það hvernig starfs­lok hans báru að og hvaða ástæður hann tel­ur að búi að baki þeirri ákvörðun dóms­málaráðherra. Hann seg­ir und­an­bragðalaust að hon­um hafi verið sýnd­ur reisupass­inn.

    Þátt­ur­inn var sýnd­ur hér á mbl.is fyrr í dag en upp­töku af hon­um má nálg­ast í meðfylgj­andi spil­ara, á Spotify og YouTu­be, og er hún öll­um aðgengi­leg.

    Hlaðvörp­in sækja á

    Í þætt­in­um mæta stöll­urn­ar Krist­ín Gunn­ars­dótt­ir og Ólöf Skafta­dótt­ir en þær halda úti hinu geysi­vin­sæla hlaðvarpi, Komið gott. Á miðviku­dags­kvöld stefndu þær 450 gest­um í gamla Aust­ur­bæj­ar­bíó og héldu þar uppi stuði langt fram eft­ir.

    Þær ræða frétt­ir vik­unn­ar sem eru marg­ar og mis­mun­andi. Allt frá nýrri mæl­ingu á fylgi stjórn­mála­flokk­anna til hnífstungu­árás­ar í Úlfarsár­dal.

    Fylgstu með Spurs­mál­um á mbl.is alla föstu­daga klukk­an 14. Upp­taka af þætt­in­um er einnig aðgengi­leg á Spotify og YouTu­be og öðrum helstu efn­isveit­um.

    Ólöf Skaftadóttir, Úlfar Lúðvíksson og Kristín Gunnardsóttir eru gestir Stefáns …
    Ólöf Skafta­dótt­ir, Úlfar Lúðvíks­son og Krist­ín Gunn­ardsótt­ir eru gest­ir Stef­áns Ein­ars Stef­áns­son­ar í Spurs­mál­um að þessu sinni. María Matth­ías­dótt­ir
    mbl.is