Ný vefsíða um skaðleg áhrif laxeldis

Samtökin segjast vilja varpa ljósi á skaðleg áhrif laxeldis.
Samtökin segjast vilja varpa ljósi á skaðleg áhrif laxeldis. Ljósmynd/Havforslningsinstituttet

Sam­tök­in Vernd­ar­sjóður villtra laxa­stofna (North Atlantic Salmon Fund; NASF) og Atlantic Salmon Federati­on hafa opnað nýja heimasíðu, salmon.info, sem ætlað er að veita aðgengi­leg­ar og áreiðan­leg­ar upp­lýs­ing­ar um skaðleg áhrif lax­eld­is. Þetta seg­ir í sam­eig­in­legri til­kynn­ingu sam­tak­anna.

„Á salmon.info má finna upp­lýs­ing­ar sem iðnaður­inn fjall­ar sjaldn­ast um,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni. „Til dæm­is þarf meira en eitt kíló af villt­um fiski til að fram­leiða eitt kíló af eld­islaxi, og á hverju ári deyja tug­ir millj­óna laxa í sjókví­um, sem er ótrú­leg sóun á líf­ræn­um auðlind­um og dýra­lífi. Um er að ræða al­var­leg áhrif frá sjókví­um á villta laxa og aðrar teg­und­ir í haf­inu.“ Með opn­un síðunn­ar von­ast sam­tök­in til þess að blaðamenn, stefnu­mót­end­ur, nátt­úru­vernd­arsinn­ar og annað áhuga­fólk hafi nú áreiðan­leg­ar upp­lýs­ing­ar á ein­um stað en tekið er fram að á síðunni sé að finna yfir 300 ritrýnd­ar heim­ild­ir um mál­efnið.

„Íslenska þjóðin hef­ur vaknað og yf­ir­gnæf­andi meiri­hluti henn­ar er á móti opnu sjókvía­eldi,“ seg­ir Elv­ar Örn Friðriks­son, fram­kvæmda­stjóri NASF á Íslandi. „Samt virðist vilji þjóðar­inn­ar ekki rata í reglu­verk og lagaum­gjörð um iðnaðinn. Á salmon.info geta ráðamenn og al­menn­ing­ur fengið sann­leik­ann um sjókvía­eldi beint í æð, og skoðað all­ar þær ritrýndu heim­ild­ir sem eru þar á bakvið. Von­andi mun kom­andi lög­gjöf taka mið af gögn­un­um, vís­ind­un­um og vilja fólks­ins.“

mbl.is