Viðskipti
26. júní 2024
Siglfirska líftæknifyrirtækið Genís er metið á 23 milljarða króna, sé miðað við verðmat í tengslum við 1,1 milljarðs króna hlutafjáraukningu sem ráðist var í fyrir skemmstu. Róbert Guðfinnsson stofnandi fyrirtækisins fer með 70% hlut í félaginu og er hann samkvæmt þessu metinn á 16 milljarða króna. Hann segir að til greina komi að flytja fyrirtækið frá Siglufirði ef sveitarfélaginu næst ekki að standa við loforð um uppbyggingu á svæðinu.